Dorrit sextug á Indlandi

Forsetahjónin í skólanum um í Mumbai, ásamt skólastjóranum, en stúlkan …
Forsetahjónin í skólanum um í Mumbai, ásamt skólastjóranum, en stúlkan færði Dorrit afmælisgjöf í tilefni dagsins. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson

Dorrit Moussaieff forsetafrú var leyst út með gjöfum frá indverskum börnum í skóla í Mumbaí í dag, þegar opinber heimsókn forseta Íslands til Indlands hófst. Dorrit fagnar einmitt sextugsafmæli sínu í dag, 12. janúar.

Að loknu málþingi í Mumbai í morgun heimsóttu Ólafur Ragnar og Dorrit, ásamt föruneyti, skóla fyrir fátæk börn, þar sem áhersla er lögð á tölvuþekkingu og samfélagsfræði. Nefnist skólinn Door Step School en þar sýndu stúlkur m.a. svonefndan banjara-dans. Einnig komu þær færandi hendi til Dorritar.

Ólafur Ragnar og Dorrit skoða tölvuverið í skólanum í Mumbai.
Ólafur Ragnar og Dorrit skoða tölvuverið í skólanum í Mumbai. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert