Ólafur Ragnar á Indlandi
Opinber heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, til Indlands hófst í morgun í Mumbai en Ólafur Ragnar fer einnig til Delhi og Bangalore.
Með Ólafi Ragnari eru í för Dorrit Moussaieff forsetafrú, sem er sextug í dag, embættismenn, vísindamenn og sérfræðingar við Háskóla Íslands, forystumenn í orkumálum sem og fulltrúar ýmissa íslenskra fyrirtækja. Útflutningsráð hefur unnið að skipulagningu þess þáttar heimsóknarinnar og er Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Útflutningsráðs með í för.
Upphaflega stóð til að Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, færi með forsetanum til Indlands en af því varð ekki vegna anna eftir að forsetinn synjaði Icesave-lögunum staðfestingar.
Ólafur Ragnar mun eiga fundi með frú Patibha Patil, forseta Indlands, Mohammad Hamid Ansari, varaforseta landsins, Manmohan Singh, forsætisráðherra og fleiri ráðamönnum. Þá mun Ólafur Ragnar taka við Nehru verðlaununum í Delhi.
Fram kemur í tilkynningu frá forsetaembættinu, að heimsóknin hófst í morgun með málþingi sem haldið var á vegum indverska viðskiptaráðsins þar sem fjallað var um margvísleg verkefni á sviði tækni, orku og viðskipta sem íslenskir og indverskir aðilar vinna nú að. Í lok málþingsins var undirritaður samningur milli íslenska jarðhitafyrirtækisins Reykjavik Geothermal og indverska orkufyrirtækisins Thermax um jarðhitarannsóknir á Indlandi og samningur milli orkutæknifyrirtækisins Marorku og Unique Maritime Group á Indlandi.Að því loknu heimsóttu forsetahjónin skóla fyrir fátæk börn þar sem áhersla er lögð á tölvuþekkingu og samfélagsfræði. Síðan fóru þau í endurhæfingarstöð þar sem fyrirtækið Össur kynnti ramleiðsluvörur sínar og hvernig þær geta gagnast fólki sem orðið hefur fyrir slysi, glímir við sjúkdóma eða fötlun.
Í kvöld heldur ríkisstjóri Maharastra fylkis hátíðarkvöldverð til heiðurs forseta Íslands þar sem fjöldi Íslendinga verður meðal gesta.
Bloggað um fréttina
-
-
Magnús Óskar Ingvarsson Hvað er Össur að gera? -
Jakob Falur Kristinsson Ólafur Ragnar -
Ómar Ragnarsson Hvað segir Ragnar Reykás nú? -
Jón Rúnar Ipsen Ólafur Ragnar á Indlandi
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 15. janúar 2010, Innlent Ætluðu að hefja leit að Dorrit
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Verðlaunafé til að styrkja samstarf vísindamanna
- Föstudagur, 27. nóvember 2009, Innlent Ólafur Ragnar og Össur ætla til Indlands
- Þriðjudagur, 12. janúar 2010, Innlent Dorrit sextug á Indlandi
- Miðvikudagur, 18. febrúar 2009, Innlent Rætt um ummæli forsetans á fundi utanríkismálanefndar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































