Ávítuð fyrir stuðning við Íslendinga

Sally Magnusson og Magnús Magnússon.
Sally Magnusson og Magnús Magnússon. mbl.is

Sally Magnusson, fréttamaður BBC í Skotlandi, hefur fengið ávítur frá yfirstjórn stofnunarinnar fyrir ummæli sem hún lét falla í lesendabréfi um Icesave-deilu Breta og Íslendinga.

Sally er dóttir hins kunna sjónvarpsmanns Magnúsar Magnússonar.

Hún er sögð bundin af reglum BBC sem banna starfsfólki að blanda sér í pólitísk málefni.

Sally skrifaði eigi að síður lesendabréf í bresku helgarblaði þar sem hún gagnrýnir bresk yfirvöld fyrir að leggja miklar klyfjar á Íslendinga með því að krefjast hárra vaxta. Spyr hún hvort ekki væri nær að krefjast þriggja eða tveggja prósenta vaxta, í stað 5,5%.

Íslendinga myndi muna mikið um það en Bretar tækju varla eftir muninum.

Frétt Daily Mail um málið

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert