Stefnt að fundi í kvöld

Fulltrúar flokkanna á þingi á fundi í Stjórnarráðinu í síðustu …
Fulltrúar flokkanna á þingi á fundi í Stjórnarráðinu í síðustu viku. mbl.is/Árni Sæberg

Stefnt er að því að fulltrúar stjórnmálaflokkanna hittist á fundi í kvöld klukkan 20 þar sem ræða á áfram hugsanlega sameiginlega yfirlýsingu, sáttargjörð, um framhald Icesave-málsins og mögulegar viðræður við Breta og Hollendinga.

Leiðtogar flokkanna hittust tvívegis í síðustu viku og var stefnt að frekari fundahöldum um helgina eða í þessari viku. Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í síðustu viku að reiknað væri með því að niðurstaða fáist í fyrri hluta þessarar viku hvort möguleiki opnist á að  setjast að samningaborðinu með Bretum og Hollendingum.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði á laugardag að ef formlegar viðræður hefjast milli Íslands annars vegar og Breta og Hollendinga hins vegar um Icesave verði m.a. rætt um vaxtakostnað.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert