Allt á floti vegna kannabisræktunar

Kannabisplöntur.
Kannabisplöntur. mbl.is/Kristinn

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í íbúð í fjölbýlishúsi í Breiðholti í gærkvöldi. Við húsleit  fundust um 90 kannabisplöntur og var megnið af þeim á lokastigi ræktunar.

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn í tengslum við rannsókn málsins en tildrög þess voru þau að lögreglan var kölluð á vettvang vegna mikils vatnsleka og þurfti hún að brjóta sér leið inn í íbúðina.

Innandyra fundust  kannabisplönturnar en hluti þeirra var í sérútbúnu, földu rými. Um var að ræða fullkomna vatnsræktun.

Lögreglan segir ljóst,  að talsverðar vatnsskemmdir hafi orðið bæði í íbúðinni þar sem kannabisræktunin var og í öðrum íbúðum hússins  og sameign þess.

Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á vettvang og dældi m.a. vatni af gólfi.
 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert