Hætti við lendingu á Ísafirði vegna veðurs

Frá Ísafjarðarflugvelli.
Frá Ísafjarðarflugvelli. mynd/bb.is

Flugvél Flugfélags Íslands á leið frá Ísafirði lenti í mikilli ókyrrð þegar flogið var uppúr Skutulsfirðinum, en vélin hætti við lendingu á Ísafirði. Öllu flugi til og frá Ísafirði hefur verið aflýst í dag en athuga á með flug á ný í fyrramálið.

Vélin fór af stað frá Reykjavík um kl. 10:15 með 23 farþega um borð ásamt þriggja manna áhöfn. Í aðflugi inn á Ísafjarðarflugvöll var ákveðið að hætta við lendingu vegna nokkurrar ókyrrðar, þegar vélin hinsvegar flýgur frá Ísafjarðarflugvelli lendir hún í mikilli ókyrrð. Vélinni var síðan flogið til Reykjavíkur þar sem lent var um kl. 11:50. Þetta kemur fram á vef Flugfélags Íslands.

Við komuna í Reykjavík fór áhöfn vélarinnar ítarlega yfir flugið með farþegum vélarinnar og útskýrði hvað gerst hafði, einnig var farþegum boðin áfallahjálp.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert