„Sjálfvirk bílaþvottastöð“ undir Eyjafjöllum
Mjög hvasst er um landið sunnan- og suðvestanvert. Undir Eyjafjöllum mælist vindhraðinn á bilinu 20-25 metrar á sekúndu, en um 40-50 metrar á sek. í hviðum. Bændur undir Eyjafjöllum eru ýmsu vanir og taka lífinu með ró. Þeir segjast hafa séð það svartara.
„Ef bíllinn þinn er drullugur þá geturðu farið með hann út og þar er sjálfvirk þvottastöð,“ segir Þórarinn Ólafsson, kornbóndi í Drangshlíð, í samtali við mbl.is og hlær. Það sé stíf austanátt og rigning.
Aðspurður segir hann lítið sem ekkert hafa fokið í hvassviðrinu. „Gæsirnar eru að fjúka til í akrinum hjá mér. Þær eru að reyna finna sér skjól,“ segir Þórarinn og bætir við: „Þetta er nú ekkert svart ennþá." Allir haldi sig innandyra við vinnu, allt hafi verið sett í skjól og menn séu lítið úti.
Páll Magnús Pálsson, bóndi í Hvassafelli, segir í samtali við mbl.is að þessa stundina rigni á hlið. Veðrið sé hins vegar ekki mjög slæmt. „Það eru ekki byljir eins og verða hérna stundum.“
Sjálfvirka veðurathugunarstöðin á Steinum er rétt hjá og þar mælist vindhraðinn á bilinu 22-24 metrar á sekúndu að hans sögn. Öflugasta hviðan hafi mælst 50 metrar á sekúndu.
Veðurstofa Íslands bendir á að sjálfvirkar veðurathuganir birtist ekki á vefnum vegna bilunar í vélbúnaði. Unnið sé að viðgerð. Þetta á einnig við veðurvef mbl.is, sem fær upplýsingar frá veðurstofunni.
Bloggað um fréttina
-
Pálmi Freyr Óskarsson Veðrið á Stórhöfa "í beinni" -
Guðrún María Óskarsdóttir. Eyfellingar ýmsu vanir af veðurham.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 8. október 2009, Innlent Víða orðið hvasst
- Föstudagur, 11. febrúar 2011, Innlent Djúp lægð beygir til Grænlands
- Þriðjudagur, 4. janúar 2011, Innlent Grjótfok við Svaðbælisá
- Föstudagur, 22. janúar 2010, Innlent Afar hvasst á sunnan- og vestanverðu landinu
- Föstudagur, 17. desember 2010, Innlent Snarpar vindhviður undir Eyjafjöllum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































