Nýr prestur stýri og beri ábyrgð á kirkjustarfinu
Eftir Sigmund Sigurgeirsson
Samþykkt var á almennum safnaðarfundi á Selfossi í gær að krefjast þess af biskupi, að presti sem taka á til starfa í Selfossprestakalli verði falið að stýra og bera ábyrgð á öllu kirkjustarfi í Selfosskirkju. Ágreiningur var um tillöguna en hún samþykkt með 64 atkvæðum gegn tíu.
Þar sem fleiri en einn prestur starfa innan sömu sóknar skal, samkvæmt starfsreglum, verkaskipting fara fram undir forystu sóknarprests. Séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson, sóknarprestur í Selfossprestakalli, á ekki von á öðru en svo verði áfram. Lög og starfsreglur kveði á um ábyrgð sóknarpresta og hann segist ekki skorast undan þeim skyldum. Hann beri ábyrgð á starfi sem fram fer í kirkjum prestakallsins.
Fjölmenni var á safnaðarfundinum sem var boðaður vegna nýlegrar sameiningar Selfossprestakalls og Hraungerðisprestakalls. Hart var deilt á hvernig sú sameining kom til, en hún var ákveðin á kirkjuþingi í nóvember síðastliðnum.
Árni Valdimarsson, einn fundarmanna, sagðist í samtali við Morgunblaðið þess fullviss að þorri fundarmanna hefði ekki gert sér grein fyrir því hvað var verið að samþykkja. Samkvæmt áskoruninni væri fundurinn í raun að krefjast þess að biskup svipti sóknarprest forræði yfir stærstu kirkjudeildinni í prestakallinu. Á fundinum beindi Árni því til fundarmanna að tillaga að áskoruninni yrði ekki lögð fram en fylgdi því hins vegar ekki eftir. Greinilegt væri hvernig til fundarins var boðað, fylgismenn séra Óskars Hafsteins Óskarssonar, starfandi afleysingaprests á Selfossi, hefðu smalað á fundinn til að koma í gegn ályktuninni og því hefði verið þýðingarlaust að bera upp breytingartillögur, eða frávísun.
Þórður Árnason, sem lagði tillöguna fram, segir að líta megi svo á að farið sé fram á að sóknarpresturinn afsali sér völdum í kirkjunni. Hann sé þó ávallt yfirmaður starfsins. Þórður neitar því að sérstaklega hafi verið smalað á fundinn af sinni hálfu.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Nýr prestur stýri og beri ábyrgð á kirkjustarfinu/er ekki þessi ... -
Bjarni Harðarson Er Selfoss í Biblíubeltinu?
Innlent »
Sunnudagur, 12.2.2012
- „Ég hef sjaldan verið jafnglaður“
- Böðuð ljósi og litum
- Meirihluti vill Ólaf Ragnar áfram
- Hundrað þúsund meira í bensínskatt
- „Okkar dyr hafa alltaf staðið opnar“
- „Þjóðin valdi okkur“
- Blár ópal fékk flest atkvæði
- Gæslan bíður eftir skýrslu
- Vilja nýtt kúakyn til Íslands
- Ók á ljósastaur
- Hundur fastur í neti
- Hjartað í tónlist en höfuðið í lækningum
- Mikið annríki á Læknavaktinni
- Nálgast 30.000 undirskriftir
- Kjörin formaður Sambands ungra framsóknarmanna
- Bæta við strætóferðum á Suðurlandi
- Gæði röntgenmynda margfaldast
- Nefbrotinn eftir árás
- 17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Fimm sækja um á Selfossi
- Fimmtudagur, 20. maí 2010, Innlent Dagleg kirkjustörf í höndum séra Óskars
- Fimmtudagur, 2. apríl 2009, Innlent Sóknarnefnd leggst gegn endurkomu Gunnars
- Fimmtudagur, 15. október 2009, Innlent Hyggst hafa boðskap biskups að engu
- Þriðjudagur, 24. mars 2009, Innlent Séra Gunnar aftur til starfa 1. maí
-
Átök í Aþenu
-
Whitney Houston minnst á Grammy-hátíðinni
-
Adele fékk sex Grammy-verðlaun
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla



































