Ísbjörninn stoppaður upp
Náttúrufræðistofnun Íslands mun taka við og rannsaka hræ ísbjarnarins sem var skotinn skammt frá Þistilfirði síðdegis í dag. Þorvaldur Björnsson, starfsmaður NÍ, segir að dýrið verði að öllum líkindum stoppað upp.
Þorvaldur á eftir að skoða dýrið sjálfur, en hann segir að ekki sé um fullvaxta dýr að ræða. „Dýrið verður að öllum líkindum stoppað upp eins og hin dýrin,“ segir Þorvaldur í samtali við mbl.is, og vísar til ísbjarnanna tveggja, sem voru skotnir á Norðurlandi árið 2008.
Málið er nú á forræði Náttúrufræðistofnunar Íslands. Dýrið verður rannsakað og sýni tekin. Auk þess verður innýfli ísbjarnarins tekin og beinin varðveitt.
„Þetta eru dýr sem eru búin að synda í margar vikur,“ segir Þorvaldur og bendir á að hafís hafi verið langt frá landi. Dýrin séu því oft illa útleikin eftir volkið í hafinu.
Yfir 500 hvítabirnir á Íslandi
Rúmlega 500 hvítabirnir að minnsta kosti hafa sést hér við land frá upphafi Íslandsbyggðar. Fram kemur á vef Náttúrufræðistofnunar, að elsta heimildin sé frá um 890 þegar Ingimundur gamli, landnámsmaður í Vatnsdal, sá birnu með tvo húna og að sögn varð þá til örnefnið Húnavatn í Þingi í Austur-Húnavatnssýslu.
Sum ár hafa komið hingað tugir hvítabjarna. Árið 1274 er t.d. getið um 22 dýr og 27 árið eftir. Á síðustu öld er vitað um a.m.k. 71 dýr í 59 tilvikum. Um þriðjungur þeirra, eða 27 dýr, sást hafísveturinn 1917—18.
Talið er að hvítabirnir í heiminum séu 20—25 þúsund, flestir í N-Kanada. Þeir eru á alþjóðlegum válista og bannað er að drepa þá nema í sjálfsvörn. Frumbyggjar hafa þó veiðikvóta.
Bloggað um fréttina
-
Einhver Ágúst No matter if you are black or white? -
-
Ómar Bjarki Smárason Glatað tækifæri í ferðaþjónustu á Norðurlandi.... -
Haugurinn bloggar Bankinn stoppaður upp -
-
Haraldur Hansson Falleg skaðræðisskepna
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 27. janúar 2010, Innlent Búið að skjóta ísbjörninn
- Föstudagur, 3. september 2010, Innlent Heilar steypireyðar rekur sjaldan á land
- Föstudagur, 23. júlí 2010, Innlent Ísbjarnarhræið reyndist fituklessa
- Þriðjudagur, 22. desember 2009, Innlent Skoffínið reyndist hundur
- Miðvikudagur, 3. júní 2009, Innlent Gætu hafa flúið átök
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































