Skeggið fokið

Þeir Tómas Tómasson og Úlfar Eysteinsson nýrakaðir stækka

Þeir Tómas Tómasson og Úlfar Eysteinsson nýrakaðir mbl.is/Golli

mbl.is Eftir Guðrúnu Hálfdánardóttur og Kjartan Þorbjörnsson

Veitingamennirnir Tómas Tómasson og Úlfar Eysteinsson eru skegglausir að nýju eftir að hafa safnað skeggi síðan í maí í fyrra. Ástæðan er sú að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti um lækkun stýrivaxta í 9,5% í morgun en þeir höfðu heitið því að skera ekki skegg sitt fyrr en stýrivextir yrðu komnir í eins stafs tölu.

Var það rakarinn Vagn Boysen sem tók að sér skeggskurðinn í morgun. Fór raksturinn fram í húsnæði Seðlabanka Íslands en Már Guðmundson, seðlabankastjóri tók á móti félögunum í morgun og sýndi þeim húsakynni bankans.

Úlfar og Tómas létu skeggið hins vegar ekki frá sér því þeir settu það í poka. Úlfar ætlar að nýta það í veiðiflugur en Tómas ætlar að geyma sitt í krukku.

Klukkan 11 verður kynnt rit Seðlabanka Íslands, Peningamál auk þess sem Már mun gera grein fyrir ákvörðun peningastefnunefndarinnar að lækka vexti í dag. 

Beðið eftir rakstri

Beðið eftir rakstri mbl.is/Golli

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Drangeyjarfélagið er ósátt við bann á veiðum.

Aldagamlar hefðir í hættu

00:24 Hætta er á að aldagamlar hefðir við veiðar og eggjatöku glatist með friðun fimm tegunda svartfugls. Þetta segir stjórn Drangeyjarfélagsins í bréfi sem sent var umhverfisráðherra og öllum þingmönnum. Meira »
Frá sjóðfélagafundi Sameinaða lífeyrissjóðsins á Hótel Nordica í kvöld.

Vill óháða úttekt

Í gær, 23:17 Varaformaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins hyggst leggja til við stjórn sjóðsins að fenginn verði utanaðkomandi aðili til að fara yfir málefni sjóðsins. Einnig að að fulltrúar aðildarfélaganna verði fengnir til að fara yfir þau mál sem nefnd eru í skýrslu úttektarnefndar lífeyrissjóðanna. Meira »

Fjöldi fólks sótti Vetrarhátíð

Fjöldi fólks kom saman á Skólavörðuholti í tilefni af Vetrarhátíð.
Í gær, 23:08 Fjöldi fólks gerði sér ferð í miðborg Reykjavíkur í kvöld þegar Vetrarhátíðin var sett. Fjöldi viðburða eru um alla borg næstu daga og er markmiðið með þeim að lýsa upp mesta skammdegið í febrúar. Borgarbúum og gestum gefst tækifæri til að taka þátt í fjölbreyttri dagskrá sér að kostnaðarlausu. Meira »

Artemisia sigraði aftur

Artemisia Bertus sigraði í meistaradeildinni í kvöld, á Korg frá Ingólfshvoli. Hér er hún með ...
Í gær, 22:31 Artemisia Bertus, Hrímni, á stóðhestinum Korg frá Ingólfshvoli sigraði í gæðingafimi á öðru móti meistaradeildar í hestaíþróttum sem fram fór í Ölfushöllinni á Ingólfshvoli í kvöld. Artemisia sigraði einnig á fyrsta móti meistaradeildarinnar, í fjórgangi, þá á Óskari frá Blesastöðum 1a, og er því með örugga forystu í mótaröðinni. Meira »

ESB kallar eftir sameiningu ráðuneyta

Evrópuþingið í Brussel.
Í gær, 21:51 Meðal þess sem kemur fram í tillögu að ályktun utanríkismálanefndar þings Evrópusambandsins sem rædd var á fundi hennar 6. febrúar síðastliðinn er að nefndin leggi áherslu á það við íslensk stjórnvöld að þau haldi áfram vinnu við að sameina ráðuneyti eins og stefnt hafi verið að. Meira »

Laun forsætisráðherra hækkað um 217 þúsund

Jóhanna Sigurðardóttir.
Í gær, 22:43 Laun Jóhönnu Sigurðardóttur hafa hækkað um 217 þúsund krónur á kjörtímabilinu og með starfstengdum greiðslum fær hún 235 þúsund krónum meira fyrir störf sín en í upphafi kjörtímabils. Þetta kemur fram í Fréttatímanum, sem kemur út á morgun. Meira »

„Gjörspilltir stjórnmálamenn“ til valda

Björn Valur Gíslason
Í gær, 22:00 Þingflokksformaður Vinstri grænna segir að gjörspilltir stjórnmálamenn séu komnir aftur til valda í Kópavogi og ekki þurfi að óttast að þeir láti almennar leikreglur stöðva sig. Í pistli á vefsvæði sínu segir hann að ástandið sé því orðið eðlilegt aftur í sveitarfélaginu. Meira »

Skoða lækkun á gjöldum

Kópavogur
Í gær, 21:29 Endurskoða á fasteignagjöld á íbúðir og önnur gjöld með lækkun í huga, samkvæmt málefnasamningi nýs meirihluta í Kópavogi. Þó verði ábyrg fjármálastjórnun viðhöfð og áhersla lögð á niðurgreiðslu skulda. Ennfremur á að leggjast í úttekt á stjórnsýslu og fjármálum sveitarfélagsins. Meira »

Sviðið fauk í hávaðaroki

Sviðið fauk á hliðina í hávaðaroki.
Í gær, 21:28 Vetrarhátíð var sett við Hallgrímskirkju í kvöld en ekki vildi betur til en svo að sviðið fauk á hliðina í rokinu. Flestir áhorfendur voru farnir og enginn var í námunda við sviðið þegar það fauk. Meira »

Ætlar á sjóinn aftur myndskeið

Eirikur Sjomadur
Í gær, 20:35 Eiríkur Ingi Jóhannsson segist hafa fengið góð viðbrögð við frásögn sinni sem birtist í Kastljósi í síðustu viku. Lítið sé að gera við því þó einhverjir hafi viljað líta neikvætt á það. Eiríkur segist ætla aftur á sjóinn sem hann segist ekki óttast þrátt fyrir slysið hörmulega undan Noregsströnd. Meira »

Trúnaður ríkir um mál kennara

Brekkuskóli á Akureyri.
Í gær, 21:09 Formaður skólanefndar Akureyrar segist ekkert geta tjáð sig um málefni grunnskólakennara í Brekkuskóla sem skrifað hefur um samkynhneigð sem synd á vefsvæði sitt. Málið var tekið fyrir á fundi nefndarinnar fyrr í vikunni. Meira »

Minningarsjóður Vilhjálms Vilhjálmssonar

Stofnendur minningarsjóðs um Vilhjálm Vilhjálmsson.
Í gær, 20:23 Stofnaður hefur verið minningarsjóður í nafni Vilhjálms Vilhjálmssonar söngvara. Hlutverk hans er að styrkja árlega til náms söngvara sem þykja skara fram úr á sínu sviði. Meira »

410 milljón króna lán Hafnarfjarðar

Hafnarfjörður.
Í gær, 19:52 Bæjarráð Hafnarfjarðar samþykkti á fundi að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja lántöku upp á 410 milljónir króna hjá Lánasjóði sveitarfélaga, vegna endurfjármögnunar afborgana hjá sjóðnum. Meira »

Heilsugæslum verði fækkað

Neskaupstaður.
Í gær, 19:35 Í skýrslu sem gerð var að beiðni HSA vegna niðurskurðarkröfu stjórnvalda er lagt til að miðstöð bráðalækninga á Austurlandi verði á Egilsstöðum og að heilsugæslustöðvum á svæðinu verði fækkað. Skýrslan er aðeins hugmyndaplagg, segir forstjórinn. Meira »

Vill sveigjanlegt eftirlaunakerfi

Jóhanna í hópi níu forsætisráðherra sem funduðu Stokkhólmi í dag.
Í gær, 19:00 Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sagði í dag að hún vildi að eftirlaunakerfið væri sveigjanlegt þegar kæmi að starfslokum og upptöku eftirlauna og vísaði til íslenska eftirlaunakerfisins. Meira »

Líkir samkynhneigð við bankarán

Snorri Óskarsson grunnskólakennari.
Í gær, 19:49 Snorri Óskarsson, grunnskólakennari við Brekkuskóla á Akureyri, líkir samkynhneigð við það að ræna banka, að því leyti að hvort tveggja sé synd. Þetta sagði hann í viðtali í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Meira »

Átti undir högg að sækja

Ármann Kr. Ólafsson, sjálfstæðisflokki og Rannveig Ásgeirsdóttir, fulltrú Y-lista Kópavogsbúa á blaðamannafundinum.
Í gær, 19:28 Slit meirihlutasamstarfsins í Kópavogi og upplausnin sem í kjölfarið fylgdi má rekja til þess að traust á bæjarstjóranum, Guðrúnu Pálsdóttur, þvarr. Með nýjum meirihluta hverfur Guðrún aftur til fyrri starfa hjá bænum sem sviðsstjóri. Hún er sögð njóta fyllsta trausts. Meira »

Voru ekki á varðbergi

Auður Hallgrímsdóttir, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Í gær, 18:49 Forsvarsmenn lífeyrissjóða voru ekki á varðbergi gagnvart gölluðum skilmálum kúlulána og hjarðhegðun einkenndi lífeyrissjóðina þegar kom að fjárfestingum fyrir hrun. Þetta segir Auður Hallgrímsdóttir, formaður stjórnar Sameinaða lífeyrissjóðsins, en fundað er nú um lífeyrissjóðaskýrsluna á Nordica. Meira »

Innlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Feng Shui fyrir heimili og fyrirtæki
Ár drekans. Nýttu orkuflæðið þér og þínum í hag. Ráðgjöf og kennsla ásamt 2 tí...
Lærðu Netvinnu
http://halloheimur.is er þekkinarklúbbur áhugafólks um netvinnu og stendur fyrir...
VW og Skoda varahlutir 5341045
Eigum til notaða varahluti í VW, Skoda, Audi og Pajero frá '02. Kaupum bíla til ...
HP deskjet 3050 J610 series prentari
Til sölu sambyggður prentari, skanni og ljósritun splunku nýr, aldrei verið no...
 
Húsnæði óskast

Húsnæði óskast til kaups eða leigu Rót...
Grafískur hönnuður
Augl-/almannatengsl
Tækifæri fyrir snjallan hönnuð E N ...
Aðalfundur sálarrannsóknafélags íslands
Félagsstarf
Sálarrannsóknarfélag Íslands, stofn...
I.o.o.f. 11
Félagsstarf
I.O.O.F. 11 [ 1922098 [Kk...