Heimilt að veiða 130.000 tonn af loðnu
mbl.is/Kristinn
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, ákvað í dag að heimila veiðar á 130.000 tonnum af loðnu, en þar af koma rúmar 90.000 tonn í hlut íslenskra loðnuskipa samkvæmt ákvæðum samninga við önnur lönd um nýtingu loðnustofnsins við Ísland.
Hafrannóknastofnunin hefur nú mælt loðnustofninn um 530.000 tonn og í kjölfar þess lagt til veiðar á 130.000 tonnum, að því er fram kemur á vef sjávarútvegsráðuneytisins.
„Þó hér sé um takmarkað magn að ræða, ætti þessi ákvörðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að vera mikil gleðitínindi. Gera má ráð fyrir að umrætt magn geti svarað til um 10 milljarða króna verðmæta í útflutningi.
Jón Bjarnason, sjvárútvegs- og landbúnaðarráðherra leggur áherslu á að veiðum og fullvinnslu þessa afla verði hagað með þeim hætti, að sem mestur þjóðhagslegur ábati skapist af þessari auðlind,“ segir á vef ráðuneytisins.
Hrygningarstofn loðnu áætlaður 530.000 tonn
Fram kemur á vef Hafró að rannsóknarskipið Árni Friðriksson hafi verið við mælingar á stærð loðnustofnsins frá því 5. janúar sl. Rannsóknarskipið Bjarni Sæmundsson hafi aðstoðað við við mælingarnar dagana 5.-12. janúar.
Áætluð stærð hrygningarstofns loðnu samkvæmt þeirri mælingu var 355 þúsundum tonn. Ekki náðist þó að kanna allt fyrirhugað leitarsvæði sökum íss sem var fyrir vestanverðu Norðurlandi. Því þótti mikilvægt að endurtaka mælingar.
Dagana 22.-29. janúar var Árni Friðriksson við mælingar á stærð stofnsins úti fyrir Austur- og Norðurlandi, ásamt Súlunni EA sem verið hefur til aðstoðar við kortlagningu loðnu á svæðinu.
Loðna fannst allt frá svæðinu útaf Austfjörðum, norður um, allt að
18°V. Alls mældust 348 þús. tonn af hrygningarloðnu á þessu svæði.
Að teknu tilliti til þessara mælinga sé hrygningarstofn loðnu áætlaður
um 530 þúsund tonn, en gildandi aflaregla geri ráð fyrir að 400 þúsund
tonn séu skilin eftir til hrygningar.
Með hliðsjón af þessu hefur Hafrannsóknastofnunin lagt til við
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið að leyfilegur hámarksafli á
vertíðinni 2009/2010 verði 130 þúsund tonn.
Bloggað um fréttina
-
Gísli Reynisson eðliegt. -
Gísli Foster Hjartarson Snilldin ein!!! -
Þorsteinn H. Gunnarsson Almannavæðing -
Haraldur Bjarnason Ásættanlegt -
Jón Ármann Steinsson Eitthvað loðið við þennan samanburð
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent Vilhelm kominn á loðnumiðin
- Laugardagur, 30. janúar 2010, Innlent Loðnan gæti gefið 8 milljarða
- Mánudagur, 24. janúar 2011, Innlent Tillaga um aukinn loðnukvóta
- Föstudagur, 19. nóvember 2010, Innlent Fer að ráðleggingum Hafró
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Loðnukvóti verði 200 þúsund tonn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































