„Kasínó er raunhæfur kostur“
Reuters
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„Kasínó er alþjóðlegt orð og spilavíti svo hrikalega neikvætt að maður veltir fyrir sér hvaða áróðursmeistari fann það upp,“ segir Arnar Gunnlaugsson hjá Ábyrgri spilamennsku ehf., spurður um það hvers vegna aðeins er rætt um kasínó í sambandi við hugmynd félagsins um að setja á fót spilavíti í húsakynnum hótelsins Hilton Reykjavík Nordica.
Ábyrg spilamennska er að jöfnum hlutum í eigu Icelandair Hotels, sem rekur ofangreint hótel, og Arnars og Bjarka Gunnlaugssona, sem þekktastir eru fyrir kunnáttu sína í knattspyrnu. Hugmynd um kasínó var kynnt í iðnaðarráðuneytinu og dómsmálaráðuneytinu. Í kjölfarið hefur verið óskað eftir umsögnum fagaðila.
„Við höfum unnið að þessu máli mjög lengi og vorum í raun að bíða eftir rétta tækifærinu. Kasínó er raunhæfur kostur og ef ekki núna þá síðar,“ segir Arnar og bendir á að sama umræða hafi farið fram í Danmörku í lok níunda áratugar síðustu aldar. „Þar var ákveðið að lögleiða rekstur kasínós með ströngum skilyrðum og hárri skattlagningu.“
Arnar segir að reynsla Dana sé sú að ólöglegir spilaklúbbar lögðust af og viðskiptavinir þeirra sóttu þess í stað í kasínóin. Hann bendir á að ólöglegum spilaklúbbum hafi fjölgað mikið hér á landi, og netspilun einnig aukist. Af þeirri spilamennsku fái ríkið engar skatttekjur.
Arnar segir um of einblínt á neikvæðar hliðar spilamennskunnar, án þess þó að hann geri lítið úr spilafíkn. Hins vegar sé hægt að hafa meira eftirlit með spilamennsku og auðveldara að koma þeim til hjálpar sem eiga við spilafíkn að stríða.
Talið er að á milli fjörutíu og sjötíu störf skapist verði hugmyndinni veitt brautargengi, en til þess þarf lagabreytingu. Ekki náðist í Rögnu Árnadóttur, dómsmálaráðherra, við vinnslu fréttarinnar.
- Á milli fjörutíu og sjötíu störf skapast með opnun spilavítis · Sama hugmynd var til umræðu í Danmörku fyrir tuttugu árum · Sú ákvörðun var tekin að leyfa fjárhættuspil með skilyrðum
Bloggað um fréttina
-
Sigríður Laufey Einarsdóttir Kasino- fjárhættuspil - fjölskylduharmleikur - meiri fátækt -
Haraldur Bjarnason Stofna frekar banka -
Ragnar Kristján Gestsson Afhelgun ímyndar? -
Ólöf Ingibjörg Davíðsdóttir Orðhengilsháttur -
Þórarinn Þ Gíslason ÉG ER HLYNTUR "KASÍNÓ " EN ÞAÐ VERÐUR BARA FYRIR ... -
Guðrún Þóra Hjaltadóttir Við eigum bara Gullfoss og Geysi.
Innlent »
- 17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum fyrir norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 23. september 2009, Innlent Ekkert síður sýnileg en forverar hennar í forsætisráðuneytinu
- Miðvikudagur, 28. janúar 2009, Innlent Vel heppnuð mótmæli, segja hernaðarandstæðingar
- Þriðjudagur, 8. febrúar 2011, Innlent Lítil sláturhús fýsilegur kostur
- Miðvikudagur, 11. nóvember 2009, Innlent Ísland verði umhverfisvottað
- Þriðjudagur, 15. desember 2009, Innlent Gert að greiða fyrir skipulagsvinnu
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup



































