Brýna viðskiptalífið til aðgerða í jafnréttismálum

Karlar eru í miklum meirihluta í stjórnum fyrirtækja á Íslandi.
Karlar eru í miklum meirihluta í stjórnum fyrirtækja á Íslandi. Sverrir Vilhelmsson

Jafnréttisráð hefur sent frá sér ályktun um hlutdeild kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs þar sem skorað er á Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskipatráð Íslands og Samtök atvinnulífsins að beita áhrifum sínum til þess að ná sem fyrst fram markmiðum sínum um 40% hlut kvenna í stjórnum fyrirtækja.

Í ályktunni er minnt á að Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands og Samtök atvinnulífsins hafi undirritað samstarfssamning 15.maí í fyrra. Markmið hans er að hlutfall hvors kyns í forystusveit íslensks atvinnulífs verði sem næst 40% í árslok 2013. „Samningsaðilar hafa undirstrikað nauðsyn þess að þetta markmið náist, enda benda reynsla og kannanir til þess að það sé farsælast. Fulltrúar allra stjórnmálaafla sem eiga fulltrúa á Alþingi skrifa undir samninginn og lýsa þannig stuðningi við markmið hans.

Nú fer sá árstími í hönd þar sem gera má bragarbót. Aðalfundir framundan og því kjörið tækifæri til breytinga. Jafnt kynjahlutfall í stjórn íslensks atvinnulífs er mikilvægt skref í átt til jafnréttis og atvinnulífi landsins til heilla.

Jafnréttisráð skorar því á alla sem undirrituðu samstarfssamninginn að beita áhrifum sínum til að markmið samningsins náist sem fyrst,“ segir í ályktun Jafnréttisráðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert