Vodafone hættir sölu á erótísku myndefni

Vodafone hefur ákveðið að hætta allri sölu á erótísku myndefni í gegnum vefgátt fyrir farsíma, Vodafone live eða Leigunni í sjónvarpi Vodafone.

Segir fyrirtækið að þetta sé gert í framhaldi af snarpri umræðu um sölu á slíku efni og hafi spjótin beinst að Vodafone. Nokkrir viðskiptavinir hafi haft samband við fyrirtækið að undanförnu og látið í ljós vanþóknun sína á að fyrirtækið dreifi slíku efni.

„Vodafone hefur meðtekið þessi skilaboð frá viðskiptavinum og samfélaginu og tekið þá ákvörðun að hætta allri sölu á slíku efni," segir í tilkynningu frá félaginu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert