Ferðamenn skila 155 milljörðum
Áætlað er að tekjur af erlendum ferðamönnum hafi numið 155 milljörðum króna á síðasta ári. Er það um 21% raunaukning frá árinu á undan. Ferðaþjónustan er því ein af stærstu gjaldeyrisskapandi greinum þjóðarinnar, hlutdeild hennar hefur verið um 18%.
Í nýútgefnum tölfræðibæklingi Ferðamálastofu má finna ýmsar upplýsingar um íslenska ferðaþjónustu. Meðal efnis má nefna niðurstöður úr könnunum meðal erlendra gesta á Íslandi 2008 til 2009 og könnun meðal Íslendinga um eigið land 2009, auk samantektar um ferðaþjónustureikninga, ferðamanna- og gistináttatalningar.
Ólík árstíðabundin sveifla eftir þjóðernum
Af þeim 494 þúsund erlendum gestum sem heimsóttu landið á síðastliðnu ári komu langflestir í gegnum Leifsstöð en þar hefur Ferðamálastofa um árabil haldið úti talningum.
Mikil árstíðabundin sveifla er í komum ferðamanna. Þannig eru heimsóknir Þjóðverja, Frakka, Spánverja og Ítala að mestu bundnar við sumarmánuðina þrjá, júní, júlí og ágúst, á meðan Bretar og Norðurlandabúar dreifast meira yfir árið.
Árstíðabundinnar sveiflu gætir ennfremur í ferðum Íslendinga um eigið land en langflestir ferðast að sumri til.
Gista tíu nætur að sumri
Erlendir ferðamenn gista samkvæmt könnunum að jafnaði 5,5 nætur að vetri og 10 nætur að sumri. Íslendingar gistu hins vegar að jafnaði 14,3 nætur á ferðalögum innanlands árið 2009.
Gistinætur erlendra ferðamanna á hótelum voru um ein milljón árið 2009 en gistinætur Íslendinga um 260 þúsund.
Íslendingar sækja í ódýrari gistingu samkvæmt könnun Ferðamálstofu en af þeirri könnun má ennfremur sjá að Íslendingar eru ekki að greiða fyrir náttúrutengda afþreyingu í miklum mæli.
Notkun og aðgengi að netinu eykst hröðum skrefum. Meira en tvöfalt fleiri erlendir gestir á Íslandi fá upplýsingar um land og þjóð á netinu en fyrir tíu árum.
Milljón gestir 2020
Ferðamönnum hefur fjölgað um 6,8% milli ára að jafnaði síðastliðin tíu ár og ef fram heldur sem horfir má búast við einni milljón erlendra gesta til Íslands árið 2020.
Til að tryggja áframhaldandi vöxt og velgengni íslenskrar ferðaþjónustu telur Ferðamálastofa að búa þurfi vel í haginn til að ferðaþjónusta geti þróast í sátt við land og þjóð.
Vefur Ferðamálastofu.
Bloggað um fréttina
-
Ómar Skapti Gíslason Gangandi gullpokar -
Sigurður Hrellir Brotabrot í landkynningu? -
Ómar Ragnarsson Mun meiri virðisauki en af stóriðju. -
Björgvin Guðmundsson Tekjur af erlendum ferðamönnum 155 milljarðar sl. ár
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
- Misþyrmdi manni og skildi eftir
- Þráðlaust net í Íslandsflugi
- Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu
- Fundu eiturlyf við leit
- Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda
- Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum
- Ungur piltur lærleggsbrotnaði
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. nóvember 2010, Innlent 155 milljarða gjaldeyristekjur
- Þriðjudagur, 3. nóvember 2009, Innlent Stefnir í metár í ferðaþjónustu
- Fimmtudagur, 22. október 2009, Innlent Beiðnum um aðstoð á hálendinu fjölgar mikið
- Miðvikudagur, 23. júní 2010, Innlent Stefnir í góðan júnímánuð
- Laugardagur, 7. ágúst 2010, Innlent Stefnir í viðunandi ferðamannasumar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“



































