Vopnað rán í verslun 10/11

Tilkynnt var um vopnað rán í 10/11 verslun í Álfheimum, Glæsibæ, rúmlega hálftíu í morgun.  Þar hafði maður á þrítugsaldri hafði komið inn og hótað afgreiðslustúlku með blóðugri sprautunál og heimtað peninga. 

Að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafði maðurinn óverulega upphæð út úr þessu enda hafi verslunin, eins og flestar aðrar verslanir, sérstaka vörn gegn ráni. 

Vitni gátu gefið lögreglu greinargóða lýsingu á manninum og sögðu hann hafa hlaupið í átt að Laugardalnum.  Lögreglan kom síðan að Laugardalnum úr öllum áttum og  búið var að hinn grunaða kl. 09:52.  Var hann með ránsfenginn í öðrum sokknum en hafði áður kastað sprautunni frá sér.  Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, var færður í fangageymslu lögreglunnar og verður yfirheyrður síðar.  Hann hefur áður komið við sögu lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert