Níu fluttir á sjúkrahús

mbl.is/Július

Níu voru fluttir til skoðunar á sjúkrahús eftir harðan árekstur lítillar rútu og jeppa á Fagradal upp úr klukkan níu í morgun, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á Egilsstöðum. Enginn þeirra er alvarlega slasaður en bifreiðarnar eru mjög illa farnar enda áreksturinn harður.

Mikil hálka og ísing er á veginum um Fagradal, að sögn lögreglu sem er enn á slysstað. Ekki liggur nákvæmlega fyrir hversu alvarleg meiðsl hinna slösuðu er en að sögn lögreglu er í einhverjum tilvikum um minniháttar meiðsl að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert