Lýst eftir fanga

Fanginn skilaði sér ekki á Litla-Hraun eftir helgarleyfi.
Fanginn skilaði sér ekki á Litla-Hraun eftir helgarleyfi. Ómar Óskarsson

Lögreglan á Selfossi lýsir eftir Guðbjarna Traustasyni fanga. Hann skilaði sér ekki úr reglubundnu helgarleyfi frá fangelsinu að Litla Hrauni í gær og eftirgrenslan eftir honum hefur ekki skilað árangri. 

Guðbjarni er fæddur 31. desember 1982.  Hann er um það bil 185 sm á hæð og um 70 kg.   Hann er ekki talinn hættulegur.   Talið er að Guðbjarni dvelji á Reykjavíkursvæðinu. 

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir hans eða dvalarstað eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Selfossi í síma 480 1010

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert