Breyting á tollalögum

Til stendur að setja lög á Alþingi í dag sem er ætlað að bregðast tímabundið við greiðsluerfiðleikum fyrirtækja vegna þess samdráttar sem nú ríkir í íslensku efnahagslífi. Um er að ræða nokkurs konar greiðsluaðlögun fyrir atvinnulífið þar sem fyrirtækjum verður gert kleift að dreifa gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalds.

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi í gærkvöldi og stendur til að afgreiða það sem lög  í dag. Voru veitt afbrigði í upphafi þingfundar svo hægt væri að taka málið á dagskrá.

Í frumvarpinu, sem fjármálaráðherra leggur fram, er lagt til að vegna uppgjörstímabilanna janúar og febrúar annars vegar og mars og apríl hins vegar verði á árinu 2010 hefðbundnum gjalddögum aðflutningsgjalda og vörugjalda dreift á tvo gjalddaga í stað eins. Þetta tímabundna fyrirkomulag kallar á breytingar, í formi ákvæða til bráðabirgða, á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt.

Fram kemur í greinargerð með frumvarpinu að greiðsluaðlögun af sama tagi hafi verið lögfest á síðasta vorþingi. Í þeim lögum var heimildin til greiðsluaðlögunar tímabundin og gilti einungis fyrir árið 2009. Með frumvarpi nú sé lagt til að þessi heimild verði framlengd tímabundið.

Frumvarp þetta er einnig tengt frumvarpi sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi og varðar greiðsluuppgjör á opinberum gjöldum lögaðila og einstaklinga í atvinnurekstri. Þar er gert ráð fyrir verulegri ívilnun að því er varðar innheimtu á gjöldum sem voru í vanskilum 1. janúar 2010.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert