Bankinn beðinn að leiðrétta misskilning
Eignarhaldsfélagið Samson greiddi í apríl árið 2005 að fullu lán sem tekið var hjá Búnaðarbankanum í apríl árið 2003 fyrir annarri af þremur greiðslum á 45,8% eignarhlut í Landsbanka Íslands. Morgunblaðið hefur undir höndum kvittanir sem staðfesta greiðsluna. Fullyrt var á síðasta ári að lánið væri enn ógreitt og í vanskilum.
Ásgeir Friðgeirsson, ráðgjafi Björgólfs Thors Björgólfssonar, segir að svo langan tíma hafi tekið að leiðrétta þann misskilning þar sem Samson er þrotabú og fyrrverandi eigendur höfðu ekki aðgang að gögnum. Þá hafi verið gerð munnleg athugasemd við frétt Fréttablaðsins um málið í apríl á síðasta ári en ekki hafi verið tekið mark á henni og að staðið væri við fréttina.
Jafnframt hafi verið óskað eftir því við Arion banka, að staðfest væri að lán Samsonar vegna kaupa á hlutnum í Landsbankanum hafi verið að fullu greitt, en bankinn neitað að svara, þar sem óskin þyrfti að koma frá bústjóra Samsonar.
„Bústjóri sendi fyrir okkar hönd bréf til bankans en því hafði ekki verið svarað þegar gögnin fundust hjá endurskoðanda,“ segir Ásgeir og bætir við að kvittanirnar hafi borist nú fyrir helgi.
Bloggað um fréttina
-
Guðlaugur Hermannsson Stofnfjárfestar eru almennt ekki að taka smáupphæðir að láni. Þeir ...
Innlent »
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
- Meira haldlagt af stinningarlyfjum
- Prófa viðvörunarboð í farsíma
- Skilaði inn 200 auka undirskriftum
- Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Ekki bankans að upplýsa
- Þriðjudagur, 9. mars 2010, Innlent Samson greiddi lánið árið 2005
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Félagið MGM var selt á „óskiljanlegu“ verði
- Fimmtudagur, 15. apríl 2010, Innlent Björgólfur Thor gerir athugasemd við frétt
- Miðvikudagur, 22. júlí 2009, Innlent Gekk að innistæðum eftir gjaldþrot Samsonar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































