Segir að rætt hafi verið um skötuselinn
Skötuselur
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, sagði í Kastljósi Sjónvarpsins í kvöld að skötuselurinn hafi komið fram við endurskoðun stöðugleikasáttmálans í október. Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hafi lofað því að ekki yrði hróflað við skötuselnum.
Samtök atvinnulífsins segja það ófrávíkjanlega kröfu, að svonefnd skötuselslög, sem samþykkt voru á Alþingi í gær, verði dregin til baka. Samtökin segjast líta svo á, að ríkisstjórnin hafi með þessari lagasetningu slitið stöðugleikasáttmálanum, sem gerður var í fyrra.
Sagði Vilhjálmur á blaðamannafundi íd ag að skötuselsmálið snérist um tvö grundvallarmál. Í fyrsta lagi hefði Alþingi allt í einu veitt heimild til að ofveiða eina fiskitegund 80% umfram ráðgjöf Hafrannsóknastofnunar en SA væru fylgjandi því að farið verði að ráðgjöf fiskifræðinga.
Í öðru lagi væri með lögunum verið að gera grundvallarbreytingar á kvótakerfinu, sem fælust í því að selja ætti fiskveiðikvótann en lögin gera ráð fyrir því að viðbótarkvóta í skötusel verði úthlutað gegn gjaldi. Sagði Vilhjálmur, að útgerðir hefðu tekið á sig kvótaskerðingu þegar illa gekk en ættu ekki samkvæmt þessu ekki að njóta þess þegar betur áraði.
Stöðugleikasáttmálinn snýst ekki um skötusel eða kvótakerfið yfirleitt, segir í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni í dag.
„Stöðugleikasáttmálinn er formlegur samráðsvettvangur ríkisstjórnar Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Alþýðusambands Íslands, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Bændasamtaka Íslands og Samtaka atvinnulífsins um margvísleg brýn samfélagsmál og efnahagslega endurreins Íslands. Allir ábyrgir aðilar hljóta að koma að því mikilvæga samstarfi hvað sem öðrum óskyldum ágreiningsmálum líður.
Ríkisstjórnin hvetur Samtök atvinnulífsins til áframhaldandi samstarfs á grundvelli stöðugleikasáttmálans og lýsir því yfir að hér eftir sem hingað til er ríkisstjórnin reiðubúin til samstarfs og sátta um einstök mál. Hvað sem afstöðu Samtaka atvinnulífsins líður mun áfram verða unnið að endurreisn efnahagslífisns á grundvelli stöðuleikasáttmálans enda miðar vel í þeim verkefnum sem þar er unnið að," segir í yfirlýsingu frá ríkisstjórninni.
Bloggað um fréttina
-
Tryggvi Helgason Sjávarútvegsráðherra geri skötuselsveiðar frjálsar. -
Axel Jóhann Hallgrímsson Ekkert er verra, í knappri stöðu, en illan málstað að ... -
Gísli Foster Hjartarson Vasaklúturinn og skötuselurinn -
Gunnar Skúli Ármannsson Skötuselurinn beit íslenska spillingu
Innlent »
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent „Snýst ekki um skötusel"
- Þriðjudagur, 27. október 2009, Innlent Staðan hefur lagast
- Þriðjudagur, 23. mars 2010, Innlent Vilja að skötuselslög verði afnumin
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent „Gríðarleg óvissa“
- Miðvikudagur, 28. október 2009, Innlent Sögðu samningum ekki upp
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































