Niðurfærsla skulda ekki skattskyld

Gísli Tryggvason talsmaður neytenda.
Gísli Tryggvason talsmaður neytenda.

Að áliti talsmanns neytenda er hæpið að halda því fram að niðurfærsla skulda neytenda sé skattskyld samkvæmt gildandi lögum. Skattlagning færi því í bága við stjórnarskrá þar sem ekki sé um að ræða ívilnun eða „eignaauka“ - heldur staðfestingu á rétti neytenda.

Í fjármálaráðuneytinu er unnið að frumvarpi sem felur í sér breytingu á skattalögum, en breytingarnar miðað því að „hóflegar“ afskriftir skulda verði ekki skattlagðar. Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra, segir í Morgunblaðinu í dag að samkvæmt gildandi lögum sé skattstofninn 100%, en fyrirhugað sé að breyta þessu þannig að hann verði 50-75%.

Gísli Tryggvason, talsmaður neytenda, telur hins vegar að afskriftir skulda séu ekki skattskyld samkvæmt gildandi lögum.

Í 7. gr. tekjuskattslaga segir að skattleggja skuli „sérhverjar aðrar tekjur eða ígildi tekna sem eigi eru sérstaklega undanskildar í lögum þessum eða sérlögum.“

Gísli segir afar hæpið að telja niðurfærslu skulda „ígildi tekna“. Hann bendir einnig á að ekki sé unnt að benda á fordæmi í skattframkvæmd eða úr úrskurðum yfirskattanefndar því til stuðnings að „afskriftir“ skulda hafi verið skattlagðar í raun.

„Gæti það bent til þess að almennt hafi ríkt sú afstaða hingað til að raunhæf eða réttmæt afskrift skulda vegna aðstæðna teljist ekki „eignaauki“ í skilningi skattalaga; ætti sá skilningur ekki síður að eiga rétt á sér við núverandi aðstæður. Auk þess liggja fyrir tveir eldri úrskurðir ríkisskattanefndar sem virðast styðja þá niðurstöðu að niðurfærsla skulda teljist ekki skattskyldar tekjur.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert