Dómar hafa fyrnst vegna húsnæðisvanda í fangelsum

Ríkisendurskoðun segir að ráða verði bót á húsnæðisvanda fangels. Myndin er tekin í fangelsinu að ... stækka

Ríkisendurskoðun segir að ráða verði bót á húsnæðisvanda fangels. Myndin er tekin í fangelsinu að Litla Hrauni. mbl.is/Júlíus

Skortur er á rými fyrir fanga í fangelsum landsins og telur Ríkisendurskoðun brýnt að úr þessu verði bætt og að stjórnvöld móti heildarstefnu um fullnustu refsinga. Þá þurfi að breyta skipulagi fangelsismála.

Í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar kemur fram að einstaklingar sem biðu eftir því að hefja afplánun refsidóma voru þrefalt fleiri á síðasta ári en árið 2005 og meðalbiðtími eftir fangelsisvist tvöfaldaðist á tímabilinu. Dæmi séu um að skortur á rými í fangelsum landsins hafi valdið því að óskilorðsbundnir dómar hafi fyrnst. Segir Ríkisendurskoðun, að þetta geti dregið úr varnaðaráhrifum refsinga og grafið undan trausti almennings á réttarvörslukerfinu.

Ríkisendurskoðun telur brýnt að mótuð verði skýr heildarstefna um fullnustu refsinga, þ.e. þann hluta réttarvörslukerfisins sem sér um framkvæmd refsinga. Þar komi m.a. fram lykiláherslur stjórnvalda um fjölgun fangarýma. Í þessu sambandi leggur Ríkisendurskoðun áherslu á að stjórnvöld taki afstöðu til tillögu sem fyrir liggur um nýtt gæsluvarðhalds- og skammtímavistunarfangelsi á höfuðborgarsvæðinu.

Þá telur Ríkisendurskoðun mikilvægt að löggjafinn veiti forstjóra Fangelsismálastofnunar umboð til að skipa forstöðumenn fangelsa, en þeir eru nú skipaðir af ráðherra, og að stofnuninni verði tryggt fjármagn til að sinna lögbundnum verkefnum sínum með viðunandi hætti. Unnið verði að því að draga úr endurkomum í fangelsi, m.a. með því að auka möguleika fanga á því stunda atvinnu eða nám. Í skýrslunni er enn fremur lagt til að Landlæknisembættinu verði falið að meta þjónustu við fanga með geðræn vandamál og að mótuð verði heildarstefna í málefnum geðsjúkra, fatlaðra og aldraðra fanga.

Fram kemur að á tímabilinu 2005–2009 lauk um helmingur allra fanga afplánun sinni á áfangaheimilinu Vernd sem rekið er af frjálsum félagasamtökum. Að mati Ríkisendurskoðunar ber að leita leiða til að fjölga möguleikum fanga á að afplána dóma utan fangelsa.

Ríkisendurskoðun telur varhugavert að húsnæðisvandi fangelsa sé leystur með því að fangar fái afslátt á afplánun refsinga. Hugmyndir hafi hins vegar komið fram um að Fangelsismálastofnun fái aukna heimild til að leyfa föngum að afplána dóma utan fangelsa, s.s. með rýmri reglum um samfélagsþjónustu og reynslulausn. Mikilvægt sé að þar til bærir aðilar meti hvort slíkar stjórnvaldsákvarðanir samrýmist þrískiptingu ríkisvaldsins og mannréttindasáttmála Evrópu. Þá ættu stjórnvöld einnig að taka til vandlegrar skoðunar hvort hægt sé að innleiða rafrænt eftirlit með föngum utan fangelsa með öruggum og hagkvæmum hætti.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar

Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.

Hegningarhúsið við Skólavörðustíg.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.

Versló brautskráir 311 nemendur

21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Segir LA hafa fengið tekjurnar

Hús Leikfélags Akureyrar.
13:12 Það er rangt að tekjur af miðasölu Leikfélags Akureyrar af sýningunni Gulleyjunni, sem var í samstarfi við Borgarleikhúsið, hafi runnið suður til Reykjavíkur. LA fékk allar tekjur af sýningunni í vetur. Þetta segir Eiríkur Haukur Hauksson, framkvæmdastjóri Leikfélags Akureyrar. Hann segir fréttaflutning, þar sem annað er gefið í skyn, óheppilegan bæði fyrir LA og Borgarleikhúsið. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Þúsund hesta hópreið á Selfossi

Reiknað er með allt að þúsund hrossa hópreið á Selfossi.
12:42 Hross og reiðmenn fjölmenna á Selfoss í dag en vígja á nýja reiðhöll, Sleipnishöllina, í bænum.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Sumarbústaður í sveit www.hrosshagi.com
Til leigu vel búinn bústaður f. 4-6 manns í Biskupstungum. Heitur pottur, gasgri...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
Til sölu fellihýsi
Til sölu fellihýsi med fortjaldi gasmidstöd og 220voltarafm vel med farid uppl 6...
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
 
Leikskólastjóri við sunnufold
Stjórnunarstörf
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Prentari
Iðnaðarmenn
Prentari óskast Héraðs...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...