Telja líklegt að Icesave-samningar náist
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's segist telja líklegt, að samningaviðræður um Icesave muni halda áfram eftir kosningar í
Bretlandi og Hollandi, og líklegt er að samkomulag sem hugnast báðum aðilum muni nást síðar á þessu ári.
„Við teljum að enginn samningsaðila vilji að samningar mistakist. Hins vegar getur skortur á fyrirfram ákveðnum tímaramma dregið viðræður á langinn og gert það að verkum að gjaldeyrishöft verða við lýði á meðan. Aflétting haftanna án tryggðrar erlendrar fjármögnunar getur leitt til þrýstings til veikingar krónunnar, sem gæti haft í för með sér ný vandamál í fjármálageiranum. Ástæðan er erfið skuldastaða þjóðarinnar, meðal annars í erlendum gjaldmiðlum," segir í tilkynningu S&P þar sem tilkynnt var að lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins fyrir erlendar skuldbindingar yrði óbreytt en einkunn fyrir innlendar skuldbindingar yrði lækkuð um einn flokk.
S&P lýsir þeirri skoðun, að ríkisstjórnin sé líkleg til að starfa það sem eftir er ársins sem dragi úr líkum á pólitísku tómarúmi. Viðskiptajöfnuður hafi snúist í afgang og gjaldmiðillinn styrkst um 4% gagnvart evru frá því í byrjun janúar. Að auki hafi Seðlabankinn lækkað stýrivexti sína tvisvar á þessu ári og gjaldeyrisforðinn haldist nokkuð stöðugur.
„Við teljum að stjórnvöld muni nú kjósa að halda gjaldeyrishöftunum lengur en áformað var við upptöku þeirra fyrst eftir að íslenska bankakerfið hrundi seint á árinu 2008. Með því móti er hægt að verja erlenda lausafjárstöðu sem myndi annars eiga undir högg að sækja vegna líklegra tafa á framtíðargreiðslum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og norrænum ríkisstjórnum. Þrátt fyrir það teljum við enn að árangursrík önnur endurskoðun geti átt sér stað á næstu mánuðum. Hvað sem því líður verða gjaldeyrishöft ekki langtímalausn á veikri erlendri lausafjárstöðu Íslands. Líklegt er að þau muni standa í vegi fyrir fjárfestingarmöguleikum sem við teljum að séu afar mikilvægir fyrir efnahagsbata. Þrátt fyrir það sjáum við að landsframleiðsla dróst minna saman á síðasta ári en við áttum von á, eða um 6,5%, og líklegt er að stöðugleiki náist í efnahag landsins á árinu 2010," segir Standard & Poor's.
Innlent »
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ákvörðun S&P í samræmi við væntingar
- Föstudagur, 15. apríl 2011, Innlent S&P mun ekki taka afstöðu til þess hvort rangt hafi verið að hafna Icesave-lögunum
- Mánudagur, 1. febrúar 2010, Innlent Ísland enn á athugunarlista
- Laugardagur, 9. maí 2009, Innlent Neikvæðar horfur hjá Landsvirkjun að mati S&P
- Þriðjudagur, 5. janúar 2010, Innlent S&P gefur sér staðfestingu á Icesave
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































