Ísland uppfyllir skilyrði AGS
Talsmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins segir, að frumathugun starfsmanna sjóðsins sýni, að Ísland hafi uppfyllt þau skilyrði, sem sett voru svo hægt væri að ljúka annarri endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands hjá sjóðnum. Talsmaðurinn sagði, að framkvæmdastjóri sjóðsins hefði falið starfsmönnum að hraða endurskoðuninni í samræmi við óskir íslenskra stjórnvalda.
Gerry Brice, talsmaður AGS, sagði á blaðamannafundi í Washington í dag, Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri sjóðsins, hefði fengið óskir frá íslenskum stjórnvöldum um að ljúka annarri endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands. Sú endurskoðun er forsenda þess, að Ísland fái frekari lánafyrirgreiðslu af hálfu sjóðsins og Norðurlandanna.
Sagði Brice, eins og raunar hefur komið fram áður, að Strauss-Kahn hafi falið starfsfólki sjóðsins að flýta vinnu við endurskoðunina svo framkvæmdastjórn AGS geti fjallað um hana.
Brice sagði, að stjórnin verði að meta hvort efnahagsáætlunin gangi fram eins og til er ætlast og hægt sé að fjármagna hana. Það sé mat starfsmanna AGS, að Ísland hafi uppfyllt þessi skilyrði.
Hann sagði að reiknað væri með því að búist væri við því að endurskoðunin færi fram „á næstunni" en vildi hvorki nefna hvenær reiknað væri með því að stjórnin fjallaði um Ísland eða hvort AGS myndi senda sendinefnd til Íslands á næstu dögum.
AFP fréttastofan segir, að stjórn AGS, þar sem Bretar og Hollendingar eiga fulltrúa, hafi neitað að setja endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands á dagskrá og er það rakið til þess að Icesave-deilan svonefnda er enn óleyst.
Strauss-Kahn sagði við Bloomberg fréttastofuna í vikunni, að það þurfi að vera meirihluti í stjórn sjóðsins svo hægt væri að þoka málum Íslands áfram. „Ég hef alltaf sagt, að Icesave sé ekki skilyrði af hálfu
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en við þurfum að hafa meirihluta í stjórn
sjóðsins," hafði Bloomberg eftir Strauss- Kahn. „Ef Icesave-deilan er
leyst er ég viss um að slíkur meirihluti fyrir hendi. Ef Icesave-deilan
er ekki fullkomlega leyst veit ég ekki hvort það er meirihluti í
stjórninni."
Bloggað um fréttina
-
Jóhann Elíasson ERU ÞEIR HJÁ AGS ORÐNIR HRÆDDIR UM AÐ ÞEIR SÉU ... -
Kristinn Pétursson Óháð matsfyrirtæki taki að sér að meta skaða Íslands vegna ...
Innlent »
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Ísland kann að skorta stuðning
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Endurskoðun AGS ljúki sem fyrst
- Fimmtudagur, 14. janúar 2010, Innlent Stuðningur alþjóðasamfélagsins nauðsynlegur
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Innlent Sendir ekki fyrirspurn til Norðurlanda
- Föstudagur, 13. nóvember 2009, Innlent Lausn Icesave-deilunnar ekki skilyrði AGS
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































