Leit hafin vegna torkennilegs ljóss

Varðskipið Týr.
Varðskipið Týr.

Landhelgisgæslunni barst kl. 00:46 aðfaranótt laugardags tilkynning um torkennilegt ljós eða eld suður af Flatey á Breiðafirði. Samkvæmt fjareftirlitskerfum voru engir bátar á svæðinu en þegar ljósið hvarf ekki var ákveðið að kalla út björgunarbátinn á Rifi til að kanna málið.

Fram kemur á heimasíðu Landhelgisgæslunnar, að varðskipið Týr var statt á Breiðafirði og hélt það þegar af stað til leitar. Þá hófu björgunarsveitir á norðanverðu Snæfellsnesi að athuga hvort einhverja báta vantaði.

Varðskipið sigldi um nóttina og fram á morgunn um svæðið suður og suðvestur af Flatey án þess að nokkurs óeðlilegs yrði vart. Landhelgisgæslan segir, að ekki hafi verið vitað um neinar skipaferðir á svæðinu á umræddum tíma og heldur ekki um mannaferðir í eyjum.

Leit var hætt kl. 6:40 um morguninn en talið er líklegt að um villuljós úr landi hafi verið að ræða.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert