Önnur endurskoðun AGS samþykkt
Eftir Jón Pétur JónssonFramkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur samþykkt aðra endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra fagnar þessu. „Við erum auðvitað mjög ánægð að þetta gekk vel og snurðulaust. Það var ekki óskað eftir atkvæðagreiðslu,“ segir hann.
Hann segir yfirlýsing Norðurlandsfulltrúans hafi verið mjög góð. Fram hafi komið lán frá Norðurlöndunum séu til reiðu.
„Þetta er endurskoðun með fullri fjármögnun, sem er besta mögulega niðurstaðan. Ég geri ráð fyrir því að það verði betur staðfest eftir helgina. En við höfum ekki ástæðu til að ætla annað en að þetta hafi verið alveg eins og við gátu óskað okkur,“ segir Steingrímur í samtali við mbl.is.
Nú opnast aðgangur að rúmum 100 milljörðum kr., sem komi frá AGS, Norðurlöndunum og Póllandi.
„Svo áttum við svolítið geymt frá fyrri endurskoðun. Þetta er í sjálfu sér há fjárhæð sem við eigum núna rétt á að taka í gjaldeyrisforðann. Það verður svo bara metið í framhaldinu hvernig við förum í það,“ segir hann.
Gjörbreytir stöðu Íslands
„Það að eiga núna kost á að styrkja gjaldeyrisvaraforðann þetta myndarlega kemur okkur í raun og veru alveg fyrir vind, hvað varðar framhaldið. Ekki bara á næstu misserum, heldur sjáum við fram úr árunum 2011 og 2012, að ég tel. Við erum komin í miklu betra skjól og miklu betri stöðu. Við höfum ástæðu til að ætla að þetta hafi mjög jákvæð áhrif á marga þætti. Þetta styrkir stöðuna varðandi vaxtalækkanir í framhaldinu, gjaldeyrisstöðuleika og jafnvel frekari styrkingu krónunnar. Þetta hafi áhrif á lánshæfismatsstöðu landsins og vonandi líka jákvæð áhrif á trúverðugleika áætlunarinnar, að ganga að erlendum fjármálamörkuðum og fleira. Þetta á að geta haft margvísleg jákvæð áhrif.“
Steingrímur segir að árangurinn hafi ekki verið fyrirhafnalaus. „Það er búið að leggja gríðarlega vinnu í að tryggja að þetta gerðist. Alveg frá því upp úr áramótum,“ segir hann. Þetta bæti stöðu Íslands verulega. „Að sama skapi hefðu þær [horfurnar] dökknað ef við hefðum ekki náð þessu,“ segir fjármálaráðherra.
Þriðja endurskoðun mun að óbreyttu fara fram síðsumars.
|
|
Tilkynning frá viðskiptaráðuneytinu. |
Bloggað um fréttina
-
-
Ægir Óskar Hallgrímsson Gjaldeyrishöftin?? -
Auðun Gíslason Markaðurinn spáir að yfir 100% af Ivesave innheimtist! -
Tryggvi Þórarinsson Steingrímur ánægður en með hvað? -
Þórarinn Þ Gíslason GLEÐIFRÉTTIR Í MIÐRI GOS ÓGÆFUNNI, ERU ÞAÐ EÐA ERU ÞAÐ ... -
Gísli Bergsveinn Ívarsson Glæsileg niðurstaða -
Lúðvík Júlíusson Lærdómurinn af hruninu: Ríkið brást, ekki markaðurinn -
Andri Geir Arinbjarnarson Skýrslan liðkar fyrir láni -
Jón Baldur L'Orange "Non, je ne regrette rien" -
Jóna Kolbrún Garðarsdóttir Til óþurftar
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 21. janúar 2010, Innlent Icesave skiptir máli við endurskoðun á áætlun AGS
- Föstudagur, 31. júlí 2009, Innlent Stjórnvöld halda í vonina
- Föstudagur, 9. apríl 2010, Innlent Loksins ber stritið árangur
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Innlent Sjónarmið Strauss-Kahn koma ekki á óvart
- Mánudagur, 19. október 2009, Innlent Ekki lengra komist með Icesave-málið
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































