Fella niður flug til Kaupmannahafnar

Icelandair hefur ákveðið að fella niður flug til Kaupmannahafnar á morgun en setja þess í stað upp aukaflug til Osló, þar sem veittar hafa verið flugheimildir. Jafnframt hefur flug til Helskinki verið fellt niður, en þess í stað sett upp aukaflug til Tampere í Finnlandi, þar sem opið er fyrir flug, en auk þess verður flogið til Stokkhólms á morgun.

Af þessum sökum hafa þeir farþegar sem eiga bókað flug með Icelandair til Kaupmannahafnar á morgun verið bókaðir á aukaflugið til Osló. og farþegar sem eiga bókað flug til Helsinki verið bókaðir á flugið til Tampere.
Sérstök athygli er vakin á því að breytingar geta orðið með stuttum fyrirvara, og eru farþegar hvattir til þess að fylgjast vel með fréttum, komu- og brottfarartímum á textavarpi og vefmiðlum og upplýsingum á icelandair.is áður en farið er til Keflavíkurflugvallar.

Icelandair hafði áður aflýst flugi á morgun til London, Frankfurt, Parísar og Manchester/Glasgow.

Flug til og frá Bandaríkjunum verður samkvæmt áætlun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert