Byrjað að hreinsa tún

Mikið tjón varð á túnum á bænum Önundarhorni.
Mikið tjón varð á túnum á bænum Önundarhorni. mbl.is/Ómar

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið í samráði við stjórn Bjargráðsjóðs að heimila að hafist verði handa við hreinsun túna á bænum Önundarhorni undir Eyjafjöllum.

Fram kemur í tilkynningu frá landbúnaðarráðuneytinu að Önundarhorn hafi farið einstaklega illa undan flóðinu í Svaðbælisá, eftir að gosið hófst í Eyjafjallajökli, og hluti túna eru þakin jökulleir og öðrum framburði. Mjög mikilvægt er að þetta verkefni sé hafið strax vegna vorkomunnar og eru bændurnir Pála Kristin Buch og Sigurður Þór Þórhallsson tilbúin að takast á við það með tilstyrk Bjargráðasjóðs.

Stjórnarformaður Bjargráðasjóðs, Hildur Traustadóttir, hefur á undanförnum dögum kynnt sér aðstæður og  sótt upplýsingafundi sem hafa verið haldnir meðal íbúa á áhrifasvæði gossins. Samkvæmt upplýsingum Hildar mun stjórn sjóðsins funda í dag og fara yfir stöðu mála. En kappkostað verði að aðkoma sjóðsins verði bæði skjótvirk og skilvirk. 

Jón Bjarnason, landbúnaðarráðherra, fór í gær um öskusvæðið undir Eyjafjöllum og skoðaði ennfremur önnur vegsumerki eftir hlaup Svaðbælisár við bæinn Þorvaldseyri. Farvegur árinnar þar efst er nú fullur af sandi og aur og getur alls ekki flutt mikið vatn án þess flæða yfir bakka sína og skapa þannig hættu á enn frekara tjóni en þegar er orðið á Þorvaldseyri. 

Ráðuneytið segir, að fyrir liggi að styrkja þurfi og hækka varnagarða frekar og jafnvel dýpka farveg árinnar svo fljótt sem verða megi. Slíkt verkefni sé til skoðunar hjá Vegageðinni og Landgræðslu ríkisins í samráði við Ólaf Eggertsson bónda á Þorvaldseyri.

Unnið er áfram að skoðun mála er tengjast sjálfu öskufallinu og aðgerðum tengdum því af samráðsnefnd ráðuneytisins ásamt öðrum aðilum.

Sigurður Þórhallsson, bóndi á Önundarhorni horfir yfir skemmdirnar.
Sigurður Þórhallsson, bóndi á Önundarhorni horfir yfir skemmdirnar. mbl.is/Ómar
Gríðarlegt öskufall varð við Þorvaldseyri á fyrstu dögum gossins.
Gríðarlegt öskufall varð við Þorvaldseyri á fyrstu dögum gossins. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert