Öskufall á Selfossi

Séð inn til Þorvaldseyrar undir Eyjafjallajökli í gær. Þar er …
Séð inn til Þorvaldseyrar undir Eyjafjallajökli í gær. Þar er allt svart af ösku. mbl.is/RAX

Aska hefur fallið á Selfossi í gærkvöldi og morgun. Að sögn íbúa, sem setti matardisk sem smurður var með smjöri, út á tröppur í gærkvöldi, var greinilega öskuusalli í honum í morgun. 

Annar íbúi sergir, að úti á palli hjá sér standi kippa af Coke sem var sett út fyrr í gær. Sé strokið yfir tappana verði fingurnir svartir af fíngerðu dufti. Sama sé að segja um bíla og annað í nágrenninu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert