Ráðherra afhenti umhverfisverðlaun

Svandís Svavarsdóttir með Sigrúnu Helgadóttur og fjölskyldu henna
Svandís Svavarsdóttir með Sigrúnu Helgadóttur og fjölskyldu henna Af vef umhverfisráðuneytisins

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra afhenti Sigrúnu Helgadóttur náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti við athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag.

Haldið var upp á dag umhverfisins með afhendingu viðurkenninga og ýmsum viðburðum. Við sama tækifæri fékk prentsmiðja Oddi afhentan Kuðunginn, umhverfisviðurkenningu umhverfisráðuneytisins og nemendur Hvolsskóla voru útnefndir varðliðar umhverfisins.

Lesa má nánar um viðurkenningarnar á vef umhverfisráðuneytisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert