Nýjar reglur um gjaldeyrismál taka gildi í dag og samkvæmt þeim lækkar hámarksfjárhæð heimildar til kaupa á erlendum gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350.000 krónur.
Jafnframt hefur verið gerð breyting á
sérstökum undanþágum til að taka af allan vafa um ólögmæti svokallaðra
aflandsviðskipta.
Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum eru nýjar reglur um gjaldeyrismál fegnar út í
samræmi
við ákvæði lagaen þar er mælt er fyrir um að reglur um gjaldeyrismál skuli endurskoðaðar á sex
mánaða
fresti.
Fyrir utan að lækka hámarksfjárhæð til ferðagjaldeyris fela þær breytingar sem hafa
verið
gerðar á eldri reglum að mestu í sér orðlagsbreytingar til að
tryggja
samræmi í skýringu og túlkun þeirra.