Skáru úr skrúfu Coimbra á Reykjaneshrygg

Varðskipið Týr.
Varðskipið Týr. mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Þremur köfurum frá varðskipi Landhelgisgæslunnar tókst í dag að skera veiðafæri úr skrúfu portúgalska togarans Coimbra sem staddur er á Reykjaneshrygg, um 240 sjómílur frá Reykjanesi.

Togarinn sem er við úthafskarfaveiðar fékk veiðarfærin í skrúfuna í gærmorgun og var þá leitað eftir aðstoð Landhelgisgæslunnar. 

Tók um eina klukkustund að losa veiðarfærin úr skrúfunni. Aðstæður voru mjög erfiðar, samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar, vegna sterkrar undiröldu en á svæðinu er vindátt vestsuðvestanstæð, 8-12 hnútar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert