Björn Valur: Fyrningaleiðin ófær

Björn Valur Gíslason
Björn Valur Gíslason

Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna og varaformaður  endurskoðunarnefndarinnar um fiskveiðistjórnun, segir nýja skýrslu um skuldastöðu sjávarútvegsins sýna að ekki séu forsendur fyrir því að innkalla veiðiheimildir og leigja aftur. Þetta kemur fram í Fiskifréttum í dag.

Á vef Viðskiptablaðsins kemur fram að Háskólinn á Akureyri hafi unnið skýrsluna fyrir endurskoðunarnefndina, en hún á að varpa ljósi á afleiðingar þess fyrir fjárhag sjávarútvegsfyrirtækja, ef aflaheimildir yrðu innkallaðar í áföngum til endurúthlutunar, eins og samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnarinnar gerir ráð fyrir.

Skýrsluhöfundar könnuðu m.a. skuldastöðu 20 kvótahæstu fyrirtækjanna. Niðurstaðan er sú að 15% fyrirtækjanna séu svo illa stödd að þeim verði ekki bjargað frá gjaldþroti. Þá séu 45% fyrirtækjanna í erfiðri stöðu og þurfi aðstoð. Þetta þýðir að 40% fyrirtækjanna eiga að geta spjarað sig.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert