Harður árekstur í borginni

mbl.is/Július

Harður árekstur varð á mótum Háaleitisbrautar og Kringlumýrarbrautar á níunda tímanum í kvöld. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar var um tveggja bíla árekstur að ræða þar sem annar bíllinn valt. Engin teljandi meiðsli urðu á ökumönnum sem voru einir í bílum sínum. Um var að ræða tvo karlmenn á miðjum aldri. 

Báðir bílarnir voru óökuhæfir eftir áreksturinn og þurfti að flytja þá burt með kranabíl. 

Að sögn lögreglunnar virðist mega rekja slysið til þess að umferðarljós á staðnum voru í ólagi vegna rafmagnsleysis. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert