Geta greitt sekt en borga ekki

Þeir sem dæmdir eru í sekt þurfa oftast ekki að …
Þeir sem dæmdir eru í sekt þurfa oftast ekki að setja af sér dóm í fangelsi þó að þeir greiði ekki sektina. mbl.is/Ómar Óskarsson

Mikill meirihluti þeirra sem dæmdir eru í sekt vegna skattalagabrota eða svokallaðra „hvítflibbabrota“ greiða aldrei sektina heldur gera hana upp með samfélagsþjónustu. Ríkisendurskoðun segir að sterkur grunur sé um að menn sem gátu greitt sekt hafi komist hjá því að greiða með samfélagsþjónustu.  

Þetta kemur fram í frétt frá Ríkisendurskoðun. Tilefni fréttarinnar er svar dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn á Alþingi um fésektir og fjölmiðlaumræðu í kjölfar þess.

Samkvæmt íslenskum lögum eru refsingar tvenns konar: fésekt og fangelsi. Geti maður sem dæmdur er til sektar ekki greitt hana þarf hann að afplána svokallaða vararefsingu í formi fangelsisvistar.

Ríkisendurskoðun bendir á að eitt meginmarkmið refsinga sé að koma í veg fyrir afbrot, svokölluð varnaðaráhrif. Til að efla varnaðaráhrif refsinga við skattsvikum samþykkti Alþingi árið 1995 lög sem m.a. leiddu til þess að sektir vegna slíkra brota hækkuðu verulega. Fjórum árum síðar samþykkti Alþingi önnur lög sem m.a. veittu heimild til að breyta vararefsingu sekta úr fangelsi í svokallaða samfélagsþjónustu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar sem kom út í júní 2009, er bent á að setning síðarnefndu laganna hafi í raun unnið gegn tilgangi hinna fyrrnefndu. Opnuð hafi verið leið til að breyta háum sektum í samfélagsþjónustu og þar með í raun milda refsingar eftir á. Hugsanlegt sé að þetta hafi dregið úr þeim varnaðaráhrifum sem hertum refsingum fyrir skattalagabrot var ætlað að hafa.

„Undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefsing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt afplánuð með samfélagsþjónustu. Í skýrslunni kemur þannig fram að um 81% sekta fyrir skattalagabrot sem voru 8 m.kr. eða hærri á tímabilinu 2000–2006 voru gerð upp með þessum hætti. Einnig er bent á að bið eftir því að afplána vararefsingu sé löng vegna skorts á rými í fangelsum landsins. Að mati Ríkisendurskoðunar er hætta á því að fullnusta refsinga hér á landi sé um of farin að ráðast af aðstöðu eða aðstöðuleysi Fangelsismálastofnunar, í stað alvarleika brota og þeirra varnaðaráhrifa sem refsingum er ætlað að hafa. Þá telur Ríkisendurskoðun að dómsmála- og mannréttindaráðuneytið eigi að láta gera úttekt á kostum þess og göllum að dómstólar dæmi brotamenn til samfélagsþjónustu í stað Fangelsismálastofnunar, enda er það dómstóla að ákveða refsingar. Á það hefur verið bent að samfélagsþjónusta sé í eðli sínu refsing þótt hún sé í íslenskum lögum skilgreind sem svokallað fullnustuúrræði.

Á tímabilinu júlí 2008 til mars 2010 bárust Fangelsismálastofnun mál 44 einstaklinga sem dæmdir höfðu verið til að greiða sektir sem voru 9 m.kr. eða hærri. Samtals nam fjárhæð þessara sekta liðlega 1,3 ma.kr. Samkvæmt upplýsingum sem Ríkisendurskoðun hefur aflað eru líkur á að einungis lítill hluti þeirra verði greiddur. Jafnframt er ólíklegt að þeir einstaklingar í þessum hópi sem ekki uppfylla skilyrði um samfélagsþjónustu geti hafið afplánun í fangelsi á næstu 12 mánuðum,“ segir í frétt frá Ríkisendurskoðun.

Takmörkuð úrræði til að kanna fjárhagsstöðu

Menn sem dæmdir hafa verið til sektar eiga ekki rétt á að afplána hana með samfélagsþjónustu geti þeir greitt. Úrræði yfirvalda til að kanna fjárhag sektarþola eru hins vegar takmörkuð. Sterkur grunur leikur á að fyrir hafi komið að menn sem gátu greitt sekt hafi fengið að afplána hana með samfélagsþjónustu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar kemur fram að efla þurfi úrræði yfirvalda til að kanna fjárhagsstöðu sektarþola. Einnig þurfi að veita þeim öflugri lagaleg úrræði til þess að hindra að eignum eða fjármunum sé skotið undan þegar sakfelling liggur fyrir og háar sektir blasa við. Loks var bent á að athuga þyrfti hvort heimila ætti kyrrsetningu eigna á rannsóknarstigi þegar veruleg hætta er á undanskotum og sekt þykir nokkuð óyggjandi. Við þessari ábendingu var brugðist með setning laga þar sem kyrrsetning eigna er m.a. heimiluð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert