Lára nýtur trausts Jóhönnu

Lara V. Júlíusdóttir.
Lara V. Júlíusdóttir. mbl.is/Friðrik Tryggvason

„Lára V. Júlíusdóttir nýtur fulls trausts hjá mér,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra þegar hún var spurð eftir ríkisstjórnarfund í gær hvort hún bæri traust til formanns stjórnar Seðlabanka Íslands.

Þórunn Sveinbjarnardóttir, formaður þingflokks Samfylkingar, sagði á Alþingi fyrir helgi að Lára V. Júlíusdóttir skuldaði ráðherrum og félögum sínum í Samfylkingunni skýringar á orðum sínum varðandi laun seðlabankastjóra.

„Lára hefur starfað vel sem stjórnarmaður í Seðlabankanum og ég treysti henni fullkomlega.“

Sjá nánar um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert