Óska kyrrsetningar eigna

Hjónunum Ingibjörgu Pálmadóttur og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni hefur verið stefnt fyrir Hæstarétt í New York stækka

Hjónunum Ingibjörgu Pálmadóttur og Jóni Ásgeiri Jóhannessyni hefur verið stefnt fyrir Hæstarétt í New York mbl.is/Sverrir Vilhelmsson

Dómstóll í London hefur gefið út úrskurð, að kröfu Glitnis, um kyrrsetningu eigna Jóns Ásgeirs Jóhannessonar um víða veröld. Þeirra á meðal eru tvær íbúðir í auðmannahverfinu Gramercy Park á Manhattan sem hann keypti á u.þ.b. 25 milljónir dala, 3,2 milljarða króna. Líkt og fram kom á mbl.is í gærkvöldi þá hefur Glitnir höfðað mál gegn Jóni Ásgeiri og fleiri aðilum fyrir dómstól í New York.

Glitnir banki hóf í gær málaferli fyrir dómstól á Manhattan í New York-ríki í Bandaríkjunum gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, áður helsta hluthafa bankans, Lárusi Welding, áður forstjóra Glitnis, Þorsteini Jónssyni, áður stjórnarformanni, ásamt fleiri fyrrverandi stjórnarmönnum, hluthöfum og öðrum sem áttu hlut að máli með Jóni Ásgeiri, fyrir að hafa með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum sem nemur meira en tveimur milljörðum dala.

PricewaterhouseCoopers tók þátt í svikum

Glitnir höfðar jafnframt mál gegn PricewaterhouseCoopers, fyrrum endurskoðendum bankans, fyrir að greiða fyrir og taka þátt í að dylja þau sviksamlegu viðskipti sem Jón Ásgeir og félagar komu í kring og sem að endingu leiddu til falls bankans í október 2008.

Í tilkynningu sem slitastjórn Glitnis sendi frá sér í nótt kemur fram að Jón Ásgeir, aðaleigandi fjárfestingarsamstæðunnar Baugs, sem nú hefur komist í þrot – mun vera til heimilis í Bretlandi. Hann situr þar í stjórn nokkurra vel þekktra fyrirtækja, þ. á m. Iceland Foods og House of Fraser, sem bæði eru meðal kunnustu smásölufyrirtækja þar í landi.

Gögn málsins, sem dómfest var í New York 11. maí, leiða í ljós:

Brutu gegn íslenskum lögum og settu á svið aragrúa flókinna viðskipta

„Hvernig klíka fésýslumanna, undir forystu Jóns Ásgeirs, tók sig saman um að hafa með skipulegum hætti fé af Glitni til að styðja við sín eigin fyrirtæki þegar þau riðuðu til falls. Hvernig Jón Ásgeir og samsærismenn hans brutust til valda í Glitni, losuðu sig við reynda starfsmenn bankans eða settu þá til hliðar og misnotuðu þessa valdastöðu til að tefla fjárhag bankans í bráðan voða.

Hvernig Jón Ásgeir, Lárus Welding og aðrir, sem stefnt er í málinu, sköpuðu sér aðstöðu til að ná fé út úr bankanum og halda gerðum sínum leyndum með því að taka völdin af fjárhagslegri áhættustýringu Glitnis, brjóta gegn íslenskum lögum um bankarekstur og setja á svið aragrúa flókinna viðskipta.

Hvernig hin stefndu höfðu, með hlutdeild PricewaterhouseCoopers, aflað milljarðs dala frá fjárfestum í New York án þess að láta hið sanna koma í ljós um hvílíkar áhættu bankinn hafði tekið á sig gagnvart Jóni Ásgeiri og samsærismönnum hans. Hvernig viðskipti hinna stefndu ollu Glitni meira en tveggja milljarða dala tjóni og áttu drjúgan þátt í falli bankans," segir í tilkynningu frá Glitni.

Slitastjórn Glitnis stendur fyrir málaferlunum. Hún var skipuð til að annast skipti á búi bankans. Málaferlin voru undirbúin með rækilegri rannsókn þar sem farið var í saumana á stjórnun og viðskiptum Glitnis síðustu árin fyrir fall bankans.

„Fyrir hönd kröfuhafa Glitnis ætlar slitastjórnin að kosta kapps um að endurheimta eignir sem Jón Ásgeir og önnur hinna stefndu höfðu af bankanum en til þess telur hún dómstól New York-ríkis viðeigandi vettvang. Kjarni þessarar  málssóknar er útboð skuldabréfa upp á einn milljarð dala. Bréfin voru seld í september 2007 til fjárfesta í New York, sem höfðu verið blekktir varðandi fjárhagslega áhættu Glitnis. Af um níu þúsund kröfuhöfum Glitnis eru nálægt 90% frá öðrum löndum en Íslandi," segir ennfremur í tilkynningu Glitnis.

Glitnir var rændur innan frá segir formaður slitastjórnar

„Gögn liggja fyrir sem styðja þá ályktun að Glitnir banki hafi verið rændur innan frá,“ segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, í tilkynningu. „Málshöfðunin í dag er jákvætt skref í þá átt að draga til ábyrgðar þann fámenna hóp sem af ásetningi eða vanrækslu átti svo ríkan þátt í falli bankans.“

Glitnir hefur þegar höfðað aðskilið mál á Íslandi á hendur sumum þeim einstaklingum sem hér eiga hlut að máli. Bankinn hefur einnig vísað málum til sérstaks saksóknara og íslenskra stjórnvalda eftir því sem við á.

Í apríl 2010  birtist skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um bankahrunið þar sem fram kom að hrun fjármálakerfisins á Íslandi hefði að nokkru stafað af óhóflegum áhrifum fárra viðskiptajöfra, þar á meðal Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, í bönkum landsins.

Mál slitastjórnar Glitnis banka flytja Steptoe & Johnson LLP í New York og Slaughter and May í London.

Stefna Glitnis í heild

PDF-skrá Tilkynning slitastjórnar Glitnis
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19 landið til þess að gefa stig. Meira »
Matthías Matthíasson, söngvari.

Fyrstur karla til að lesa stigin

21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvísjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú höfuðborg Aserbaídsjan og var þeim Jónsa og Grétu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Bryan Ferry lendir

Bryan Ferry á tónleikum
15:10 Söngvarinn Bryan Ferry lendir í Keflavík nú síðdegis. Að sögn Steinþórs Helga Arnsteinssonar dvelst Ferry hér fram á þriðjudag og hlakkar mikið til að sækja landið heim. Meira »

Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað

Blíðviðri á Egilsstöðum
14:24 Milt og hlýtt veður er um austanvert landið. Hvassara og bleyta á Vestfjörðum. Rigningu er spáð um mestallt land í kvöld en lægir yfir nóttina og birtir til á morgun. Meira »

Ungu Evrópu dreift til ungs fólks

15:14 „Mikilvægt er að vanmeta ekki þátt ungmenna í þeirri umræðu sem nú stendur yfir um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu,“ segir í fréttatilkynningu frá Ungum Evrópusinnum. Meira »

Evróvisjón með viðbættu tísti

Svona mun skjárinn líta út hjá þeim sem eru með myndlykil frá Vodafone og stilla ...
14:35 Þeir Evróvisjónáhorfendur sem vilja sjá skoðanir annarra Íslendinga á frammistöðu keppenda geta í kvöld stillt á sérstaka sjónvarpsrás, þar sem tíst-straumur birtist með útsendingu Ríkisútvarpsins. Meira »

Hvítasunnuhelgin fer vel af stað

Umferð á Vesturlandsvegi
13:34 Hvítasunnuhelgin, fyrsta stóra ferðahelgi sumarsins, hefur farið vel af stað um land allt og umferð gengið áfallalaust. Ýmislegt er í boði um landið m.a. hópreið hestamanna á Selfossi, blúshátíð á Hvolsvelli, vísindaveisla á Ísafirði og á Skagaströnd verða listamenn með opið hús. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Toyota previa 7 manna
kom á götuna í nóv 2004,ekin 134 þús,sjálfskipt,krókur, álfelgur,ný heilsársdekk...
TRAVEL LITE HÚSIN
Travel Lite Húsin eru í mörgum stærðum og henta á...
Cheapest car rental in Reykjavik, Iceland
We are the cheapest Iceland car rental offering good solid cars at the lowest po...
Coleman Bayside 12" fellihýsi árg. 2003 til sölu
Coleman Bayside árg. 2003, 12" fellihýsi til sölu. heitt og kalt vatn, sólarsel...
 
Þjónustufulltrúi.
Skrifstofustörf
Þjónustufulltrúi Fyr...
Sýslumaður snæfellinga - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sýslumaðurinn í hafnarfirði - framhald uppboð

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Jobbtrygghet
Augl-/almannatengsl
JOBBTRYGGHET? UTFORDRENDE JOBB? ...