Sannfærður um sakleysi sitt verði staðfest
Magnús Guðmundsson fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg, segist allt frá hruni íslensku bankanna hafa lagt sig fram um samstarf við íslensk yfirvöld um rannsókn þess. Hann segist sannfærður um að sakleysi sitt verði staðfest.
Magnús losnaði úr vikulöngu gæsluvarðhaldi í dag, en var jafnframt úrskurður í tveggja vikna farbann. Hann sendi frá sér yfirlýsingu í dag vegna umfjöllunar í fjölmiðlum um rannsókn sérstaks saksóknara og gæsluvarðhaldið. Yfirlýsingin er eftirfarandi:
Allt frá hruni íslensku bankanna hef ég lagt mig fram um samstarf við íslensk yfirvöld um rannsókn þess, á sama tíma og ég leiddi endurreisn banka þess sem ég veitti forstöðu í Lúxemborg.
Ég tel mikilvægt að það komi fram að við handtöku mína var ég staddur hér á landi sjálfviljugur í þeim eina tilgangi að mæta í yfirheyrslur hjá sérstökum saksóknara. Ég tel því að þvingunaraðgerðir þær sem sérstakur saksóknari beitir gegn mér hafi verið fullkomlega óþarfar, enda hef ég frá upphafi verið fús til samvinnu vegna þessa máls og mætt í allar boðaðar yfirheyrslur vegna þess. Liðnir eru 540 dagar frá því að Kaupþing banki á Íslandi féll og vandséð er hvernig rannsóknarhagsmunum er ógnað með frelsi mínu nú.
Þau mál sem til rannsóknar eru hjá sérstökum saksóknara beinast nær eingöngu að Kaupþingi banka á Íslandi. Undanfarin 12 ár hef ég starfað sem forstjóri Kaupþings Lúxemborg og síðar Banque Havilland. Gegndi ég því starfi með samþykki fjármálaeftirlits Lúxemborgar, sem endurnýjað var við endurskipulagningu bankans árið 2009 með fulltingi belgískra og lúxemborgískra yfirvalda.
Ljóst er að margt fór úrskeiðis í skipulagi fjármálafyrirtækja bæði á Íslandi og annars staðar á undanförnum árum. Ég tek fulla ábyrgð á mínum störfum og mun í engu víkjast undan henni.Sú reynsla að sitja í gæsluvarðhaldi er nokkuð sem ég óska engum að þurfa að upplifa. Vistin ein og sér er þó ekki það versta. Ákvörðun um að hneppa einstakling í gæsluvarðhald er mikið áfall fyrir þann sem fyrir því verður, æru hans, fjölskyldu og stöðu í samfélaginu.
Ég lýsi því yfir að ég mun áfram sýna yfirvöldum fullan samstarfsvilja við að upplýsa málið, enda tel ég að þegar allt er fram komið þá muni sakleysi mitt verða staðfest.
Bloggað um fréttina
-
Ridar T. Falls 6 orða saga #758 -
Viggó Jörgensson Ágæt yfirlýsing - Aldrei lesið lögin? -
-
Heimir L Fjeldsted Sumir þurfa veruleikalyf -
Jens Guð Heilaþveginn bankaræningi -
Ævar Rafn Kjartansson Samfélagshrunið eftir bankahrun. -
Sigurður Haraldsson Þú ert búinn! -
Rúnar Þór Þórarinsson Hann þarf þá ekki að hafa áhyggjur af neinu
Innlent »
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 20. mars 2011, Innlent Hafnaði boði um að segja af sér
- Föstudagur, 28. janúar 2011, Innlent Fær aðgang að gögnum Havilland
- Sunnudagur, 9. maí 2010, Innlent Yfirheyrslur í Kaupþingsmáli halda áfram
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent Magnús í tveggja vikna farbann
- Fimmtudagur, 6. maí 2010, Innlent Hreiðar Már í skýrslutöku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































