Umbótanefnd Samfylkingarinnar tekur til starfa

Ákveðið var að stofna til nefndarinnar á flokksstjórnarfundi 17. apríl …
Ákveðið var að stofna til nefndarinnar á flokksstjórnarfundi 17. apríl sl. Hér sést Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Samfylkingarinnar, ávarpa fundinn. mbl.is/Golli

Umbótanefnd Samfylkingarinnar er fullskipuð, en hún hefur það verkefni að leiða umræður og skoðanaskipti um störf, stefnu, innri starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins. 

Nefndinni er ætlað að skila niðurstöðu sinni 15. október 2010, ásamt tillögum um umbætur á flokksstarfi og skipulagi flokksins, að því er segir í tilkynningu.

Ásgeir Beinteinsson skólastjóri, Hólmfríður Sveinsdóttir stjórnsýslufræðingur, Jón Ólafsson heimspekingur og Kolbrún Benediktsdóttir lögfræðingur fara með verkstjórn verkefnisins.

Tímabilið sem starf nefndarinnar beinist að fyrst og fremst er frá maí 2007 til janúar 2009. Nefndin mun starfa í anda gegnsæis og opinna vinnubragða. Verkáætlun og fréttir af vinnu nefndarinnar verða aðgengilegar á vef Samfylkingarinnar. Ætlunin er að opna sérstaka vefgátt þar sem flokksmenn geta komið með ábendingar, tillögur og spurningar.

Flokksmenn hafa skipað tvo fulltrúa hvers kjördæmis í nefndina og hún er því skipuð samtals sextán einstaklingum.

Fulltrúar kjördæmanna eru: Auður Styrkársdóttir, Hjálmar Sveinsson, Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir og Stefán Benediktsson frá Reykjavík. Steini Þorvaldsson og Steinunn Dögg Steinsen úr Suðvesturkjördæmi. Auður Ingólfsdóttir og Sveinn Allan Morthens úr Norðvesturkjördæmi. Hannes Friðriksson og Sandra Gunnarsdóttir úr Suðurkjördæmi. Ólafía Þ. Stefánsdóttir og Þorsteinn Arason úr Norðausturkjördæmi.

Helstu viðfangsefni umbótanefndarinnar eru að:

  • Fjalla um niðurstöður skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis og leggja mat á orð og verk Samfylkingarinnar í ljósi niðurstaðna skýrslunnar.
  • Rýna í stefnu Samfylkingarinnar á þeim lykilsviðum sem dregin eru fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar sem orsakavaldar eða rætur hruns fjármálakerfisins.
  • Greina starfshætti Samfylkingarinnar, ábyrgð hennar og aðkomu stofnana flokksins að lykilákvörðunum og lykilmálum i ljósi niðurstaðna rannsóknarnefndarinnar.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka