Fyrsta hrefna sumarsins

Hrefnukjöt.
Hrefnukjöt. mbl.is/Golli

Hafsteinn SK-3 kom í dag með fyrstu hrefnu sína á þessu ári í land í Hafnarfirði. Hrefnan var veidd í gær á utanverðum Faxaflóa. Þetta var u.þ.b. 23 feta tarfur, að því er segir í tilkynningu.

Eftir því sem best sé vitað sé þetta fyrsta hrefna sumarsins. Það er Útgerðarfélagið Fjörður sem gerir út Hafstein SK-3.
 
Kjötið af hrefnunni verður til sölu í Fiskbúðinni Bryggjuhúsið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert