Ódýrara bensín í dag

Olíufélög hafa brugðist við tilboði N1 sem auglýsti í morgun 15 króna afslátt af dæluverði eldsneytis í dag. Samkvæmt því kostar bensínlítrinn 193,50 krónur og dísilolían 191,50 krónur hjá N1. Önnur félög hafa einnig lækkað eldsneyti með sambærilegum hætti.

Eldsneytisverð hjá Orkunni er lægst og kostar bensínlítrinn 191,80 og dísilolíulítrinn 189,80 krónur. Verðið er 0,10 krónum hærra hjá Atlantsolíu en  hjá Skeljungi og Olís er sama verð og hjá N1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert