Aldrei fleiri bátar á grásleppu

Valentínus Guðnason og Svanur sonur á Friðborgu SH eru tilbúnir …
Valentínus Guðnason og Svanur sonur á Friðborgu SH eru tilbúnir að fara að leggja grásleppunetin og eru bjartsýnir á góða vertíð. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason

Grásleppuvertíð í innanverðum Breiðafirði hófst sl. fimmtudag. Þá máttu bátar leggja grásleppunetin. Mikið var um að vera við höfnina í Stykkishólmi þegar trillukarlar voru að gera bátana klára í slaginn.

Mikill áhugi er á veiðunum að þessu sinni. Fróðustu menn telja að aldrei hafi fleiri bátar verið gerðir út frá Stykkishólmi á grásleppu en nú.

Samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu var úthlutað 24 leyfum strax á fimmtudag í innanverðum Breiðafirði og alls hefur verið úthlutað 58 leyfum í Breiðafirði á þessari vertíð.


Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert