Staurinn klauf vélarhúsið í tvennt

Bíllinn klofnaði nánast í tvennt við áreksturinn.
Bíllinn klofnaði nánast í tvennt við áreksturinn. vf.is/Ellert

Aðkoman var nokkuð ljót er þegar lögreglu- og sjúkraflutningalið kom á vettvang umferðarslyss á Reykjanesbraut ofan Njarðvíkur í gærmorgun. Þar hafði BMW skutbíl verið ekið á ljósastaur sem gekk svo langt inn í bílinn að vélarhús hans rifnaði í tvennt.

Fram kemur á vef Víkurfrétta, að ökumaðurinn var fluttur á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja til aðhlynningar. Hann var einn í bílnum en staurinn gekk alla leið inn í farþegarýmið við hlið ökumannsins, þar sem enginn sat.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert