Ekki til í þjóðstjórn

Ögmundur Jónasson. stækka

Ögmundur Jónasson. mbl.is/Kristinn

mbl.is Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is

„Ég hef ekki sannfæringu fyrir því að ríkisstjórn með aðild allra stjórnmálaflokka sé til þess fallin að stuðla að þessu núna,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður VG, aðspurður um þá yfirlýsingu Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra að hann sé opinn fyrir hugmyndum um þjóðstjórn.

Ögmundur er ekki sammála því að slíkt skref sé heppilegt á þessum tímapunkti.  

„Prófsteinn á ríkisstjórnir er ekki hvernig þær eru samansettar heldur hvað þær gera og þá hvort og hversu vel þeim tekst að starfa í þágu þjóðarinnar. Það þýðir á þessum örlagatímum að standa vörð um auðlindir okkar til sjávar og sveita og stuðla að opnu, lýðræðislegu þjóðfélagi.

Ég hef ekki sannfæringu fyrir því að ríkisstjórn með aðild allra stjórnmálaflokka sé til þess fallin að stuðla að þessu núna. Það sem við þurfum er vissulega góð málefnaleg samvinna og opið lýðræði. Það er verkefnið en ekki að stuðla að flokkspólitískri samtryggingu í þjóðfélaginu.“ 

- Ertu þá í stuttu máli andvígur þessari hugmynd?

„Í stuttu máli hef ég ekki sannfæringu fyrir því að við náum betur saman um að tryggja betur almannaeign á auðlindum, að stokka upp fiskveiðistjórnunarkerfið og tryggja opinbert eignarhald á orkuauðlindum með aðkomu fleiri flokka að ríkisstjórn. Ég hef ekki sannfæringu fyrir því.“

Má aldrei verða til að setja hlutina í frost

- Hvers vegna telurðu að Össur leggi þetta fram núna? Getur það tengst yfirlýstri andstöðu leiðtoga Vinstri grænna, samanber orð flokksformannsins hér í gær, við inngöngu Íslands í ESB daginn eftir að leiðtogaráðið gaf grænt ljós á viðræður?

„Ég ætla ekki að ráða í hvað býr að baki þessum hugrenningum Össurar Skarphéðinssonar. Hann verður að svara því sjálfur. Það er augljóst að þessi hugmynd má aldrei verða til þess að setja hér allt í frost. Íslendingar þurfa á því að halda að við störfum í þágu þjóðarinnar.

Það þýðir í mínum huga að standa vaktina gegn fjármagnsöflum, erlendum og innlendum, sem ásælast auðlindir okkar og það hefur ríkisstjórninni ekki tekist sem skyldi. Henni hefur heldur ekki tekist sem skyldi að starfa í anda opins, gagnsæs lýðræðis og þetta er verkefnið. Menn eiga ekki að hlaupast frá þessum skyldum sínum og drepa málum á dreif með tali af þessu tagi.“

Leyndarhyggjan lengi verið vandamál

- Þú lést þess getið í þættinum Mannamáli með Sigmundi Erni á ÍNN um daginn að þú teldir leyndarhyggju einn helsta veikleika ríkisstjórnarinnar. Hvernig stendur á þessari leynd?

„Þetta hefur verið einkenni á íslenskum stjórnmálum í langan tíma, í aðdraganda hrunsins og í miklu lengri tíma. Og krafan núna er um breytt stjórnmál, um breytta aðkomu að stjórnmálum og það er það sem er verkefnið miklu frekar en að horfa til stjórnarmynstursins sem einhverrar allsherjar lausnar.

Hver og einn flokkur þarf að endurskoða sína afstöðu til vinnubragða í stjórnmálum. Það er verkefnið en ekki að kæfa slíka umræðu í einhvers konar samtryggingu,“ segir Ögmundur Jónasson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Umferðaróhapp á Hafnarfjarðarvegi

06:08 Umferðaróhapp varð laust eftir miðnætti á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnesbrú. Ökumaður var fluttur á slysadeild en meiðsl hans eru ekki talin alvarleg. Grunur leikur á um ölvun við akstur. Meira »
Repjuakur í blóma á Þorvaldseyri.

Repjuolía tilvalin á norðurslóðum

05:30 Brýnt er að aðrir orkugjafar en jarðdísilolía verði notaðir í skipasiglingum um norðurslóðir að sögn Jóns Bernódussonar, verkfræðings hjá Siglingastofnun, en brennsla hennar getur aukið á bráðnun íss á svæðinu. Meira »

Gríðarmikil óánægja með lokun útibúa

05:30 Halldór Halldórsson, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga, kveðst hafa orðið var við gríðarmikla óánægju á meðal sveitarstjórnarmanna vegna ákvörðunar Landsbankans um fækkun starfsstöðva. Meira »

Loka þyrfti 15-20 hellum

Hellinum Jörundi hefur verið lokað fyrir allri umferð, bæði fyrir hellamönnum og öðrum, til að ...
05:30 Hellarannsóknafélag Íslands vill að 15-20 hellum á landinu verði lokað á næstu árum til að forða þeim frá skemmdum. Ef ekkert verði að gert skemmist hellarnir enn frekar. Um leið þurfi að huga að því að auðvelda aðgengi að þeim hellum sem hægt er að skoða án þess að valda skemmdum. Meira »

7.000 vinnustundir að baki

Á deildinni í Kópavogi verða átta rúm opin í sumar.
05:30 Að baki nýbyggingu við líknardeild í Kópavogi liggja nærri sjö þúsund vinnustundir en ljóst er að byggingin verður ekki tekin í notkun fyrr en í fyrsta lagi í haust sökum frekari sparnaðaraðgerða á Landspítalanum, sem fram hafa komið hjá Birni Zoëga, forstjóra Landspítalans. Meira »

Ótryggðir úti á túni

Vafi leikur á því í frumvarpinu hvort ökumenn sem lenda í umferðaróhappi á bílastæði væru ...
05:30 Alvarlegar athugasemdir eru gerðar við að slysatrygging ökumanns ökutækis verði takmörkuð frá því sem nú er og að hún gildi einungis í almennri umferð, þ.e. „á vegum sem opnir eru almenningi“. Tillaga þess efnis er í frumvarpi um ökutækjatryggingar sem liggur fyrir Alþingi. Meira »

Slitastjórn kannaði störf Pars Per Pars

05:30 Slitastjórn Glitnis lét kanna sérstaklega hvort tveir fyrrverandi lögreglumenn hefðu „stytt sér leið“ í störfum sínum fyrir slitastjórnina. Meira »

Bjartviðri víðast hvar

04:35 Breytileg átt, víða 3-8 m/s, verður á landinu í dag og bjartviðri, en skýjað og sums staðar þokuloft fram eftir morgni, einkum vestantil. Hæg austlæg eða breytileg átt undir hádegi og yfirleitt léttskýjað. Hiti 8 til 20 stig, hlýjast í innsveitum. Meira »

Fimm teknir fyrir of hraðan akstur við Borgarnes

Lögreglan við eftirlit.
Í gær, 23:30 Fimm voru teknir fyrir að aka of greitt í grennd við Borgarnes í dag. Að öðru leyti virðist þessi fyrsta ferðahelgi sumarsins hafa gengið vel í umferðinni víðast hvar um landið. Meira »

Eldhúsdagsumræðu á Alþingi

Í gær, 21:07 Eldhúsdagsumræður fara fram á Alþingi annað kvöld. Samkvæmt starfsáætlun þingsins á að fresta fundum Alþingis á fimmtudag, en talið er ólíklegt að sú áætlun standist. Meira »

Mótorhjólamenn fjölmenntu í messu

Kirkjugestir voru teknir til altaris.
Í gær, 21:56 Það var talsvert annað yfirbragð yfir messu í Digraneskirkju í kvöld en venjulega, en þar fór fram svokölluð mótorhjólamessa. Í kirkjunni voru leðurklæddir mótorhjólamenn og utan við kirkjuna var röð glæsilegra mótorhjóla. Meira »

Hrapaði ofan í gil

Slysið varð skammt frá Seljalandsfossi.
Í gær, 19:31 Bresk kona stórslasaðist þegar hún hrapaði ofan í gil stutt frá tjaldstæðinu við Hamragarða, skammt innan við Seljalandsfoss við Þórsmerkurveg. Meira »

Konan fannst látin

Í gær, 19:11 Lettneska konan sem leitað hefur verið að við Meðalfellsvatn fannst látin síðdegis í dag. Hennar hafði verið saknað frá 13. maí. Flest bendir til að talsvert sé síðan hún lést. Meira »

Kiwanismenn máluðu vitann

Kiwanismaðurinn Björn Viðar mundar rúlluna af fagmennsku.
Í gær, 18:08 Félagar í Kiwansiklúbbnum Skjálfanda á Húsavík notuðu veðurblíðuna í dag til að mála vitann á Húsavíkurhöfða en hann var farinn að láta á sjá. Meira »

Bensíngjöfin festist niðri

Í gær, 17:46 Bifreið skemmdist þegar henni var ekið stjórnlaust inn í trjágróður við Hvassaleiti í Reykjavík um kl. 13:30 í dag.  Meira »

Sé ekki í samkeppni við þingið

Þóra Arnórsdóttir og maður hennar, Svavar Halldórsson, með dótturina sem fæddist 18. maí sl.
Í gær, 18:09 Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi segir að forseti sem rekur eigin stjórnmálastefnu í samkeppni við þjóðkjörið þing geti ekki ræktað sitt meginhlutverk sem sé að vera sameiningarafl. Meira »

Leitarmenn kallaðir til baka

Ligitu Solomenceva
Í gær, 18:03 Búið er að kalla til baka þá sem leitað hafa að lettnesku konunni við Meðalfellsvatn í dag. Ekki hafa borist staðfestar fréttir af örlögum konunnar. Meira »

Þröstur og Bragi jafnir

Í gær, 17:27 Jafntefli varð í fjórðu og síðustu skák úrslitaeinvígis Braga Þorfinnssonar (2449) og Þrastar Þórhallssonar (2424) um Íslandsmeistaratitilinn í dag en teflt var í Stúkunni við Kópavogsvelli. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
Nicolai bifreiðastillingar, Faxafeni 12 Sími 588-2455. Véla og hjólastillingar. ...
HÚSGÖGN,HEIMILISTÆKI, SKRAUTMUNIR OG FLEIRA TIL SÖLU.
Rococo sófasett, skrifstofuhúsgögn, rúm, ísskápar, þvottavélar, Þurrkarar, Nuddp...
PORSCHE CAYENNE Sport 2004
Eldsneyti / VélBensín 8 strokkar4.500 cc.351 hö. 2.305 kg.Drif / Stýrisbúnaður...
Landskiki óskast
Óska eftir 2-20 ha landskika við sjó,á eða vatn með leyfi fyrir 2 heilsárshús í ...
 
Atvinnuhúsnæðitil leigu eða sölu
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði Til leig...
Bl atvinnuaugl
Önnur störf
HYUNDAI FLYTUR Í NÝJA OG GLÆSILEGA FRAMT...
Samauglýsing ríkiskaup
Tilboð - útboð
* Nýtt í augl...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...