Öskubylur undir Eyjafjöllum
Öskubylur er nú undir Eyjafjöllum svo vart sést á milli bæja. Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri, segir að vindur hafi farið í 42 metra á sekúndu í hviðum við Steina.
Ólafur segir að aska og sandur fjúki og valdi skemmdum á gróðri. Laufblöð trjáa og runna tætist af greinum og það dragi í skafla við hús. Þá smjúgi ryk inn í hús og ekki sé hægt að vera utandyra án hlífðarbúnaðar.
Ólafur telur ólíklegt að ösku- og sandfokið skemmi grasið, þótt tré og runnar fari illa. Hann er ekki með neinar skepnur úti.
„Ég segi bara sem betur fer,“ sagði Ólafur. „Ég hef dregið það verulega lengi að setja út. Það má alltaf búast við að svona gerist.“ Hann sagði það ekkert grín að ná skepnum aftur í hús ef svona nokkuð gerðist.
„Það hlýtur að vera ömurlegt fyrir skepnurnar að vera úti í svona,“ sagði Ólafur. Bæði fé, kálfar og hross hafa verið sett út á nokkrum bæjum undir Fjöllunum. Fólk hefur haldið sig innandyra í dag enda vonlaust að vera úti, að sögn Ólafs.
„Það var slæmt öskufallið sem féll í hálfgerðu logni, en nú er sandurinn eða askan á fullri ferð. Stingur mjög og smýgur alstaðar inn,“ sagði Ólafur. Allar vélar og bílar á Þorvaldseyri voru sett inn í hús í gærkvöldi og annað í skjól. Hætt er við að eitthvað sjái á þökum sem eru áveðurs eftir sandrokið.
Veðrið byrjaði eiginlega snemma í morgun, að sögn Ólafs. Ekki hefur komið dropi úr lofti í dag, þótt spáð hafi verið rigningu. Nú síðdegis glitti í sólina inn á milli í öskumistrinu. Ólafur sagði þegar áttin væri norðaustlæg, eins og nú, geti komið rok og rignt bæði austan og vestan við Þorvaldseyri og svæðið þar í kring án þess að þar rigni. Þegar svo dragi úr rokinu geti farið að rigna.
„Þetta er það sem búast mátti við,“ sagði Ólafur um öskufokið. Hann sagði nokkuð óvenjulegt að fá svo mikið rok og var í dag að sumri.
Bloggað um fréttina
-
Þröstur Þorsteinsson Öskufjúk í fréttunum frá 1 júlí 2010 -
Pálmi Freyr Óskarsson Veðrið í Vestmannaeyjum 1. júlí 2010
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 5. nóvember 2010, Innlent „Virðist bara rjúka endalaust þegar vindur blæs“
- Þriðjudagur, 25. ágúst 2009, Innlent Þreskja repju á Þorvaldseyri og ætla að vinna olíu
- Fimmtudagur, 20. maí 2010, Innlent Eyðimörk eins og á tunglinu
- Fimmtudagur, 18. nóvember 2010, Innlent Í lóninu leynast þúsund rúmmetrar af sandi
- Þriðjudagur, 25. maí 2010, Innlent Innandyra í öskufoki
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































