Icesave samningar halda áfram
„Þetta heldur áfram,“ sagði Jóhannes Karl Sveinsson lögmaður, sem á sæti í samninganefnd Íslendinga um Icesave málið. Nefndin fundaði með fulltrúum Breta og Hollendinga í gær og í dag. „Við verðum í samskiptum áfram og erum að vinna úr ákveðnum málum.“
Samninganefnd íslenskra stjórnvalda átti fundi í gær og í dag með fulltrúum breskra og hollenskra stjórnvalda í Reykjavík um Icesave málið. Aðspurður kvaðst Jóhannes Karl ekkert geta tjáð sig um frekari fundarhöld en ítrekaði að nefndirnar myndu áfram eiga í samskiptum.
Jóhannes Karl sagði að fulltrúar Breta og Hollendinga séu að mestu þeir sömu og voru í viðræðunum áður. Stjórnarskipti í Bretlandi og Hollandi virðast því ekki hafa haft áhrif á skipan viðræðunefnda þeirra.
„Þessu lauk áðan og við ákváðum að vera áfram í sambandi og vinna úr þessum atriðum sem við erum alltaf að reyna að ná utan um,“ sagði Jóhannes Karl nú síðdegis.
Bandaríski lögfræðingurinn Lee Buchheit fer fyrir íslensku samninganefndinni. Auk hans skipa nefndina Guðmundur Árnason og Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjórar fjármálaráðuneytis og utanríkisráðuneytis, ásamt Jóhannesi Karli Sveinssyni lögmanni og Lárusi Blöndal lögmanni, sem tilnefndur er af stjórnarandstöðuflokkunum sameiginlega. Þeim til ráðgjafar eru sérfræðingar ráðgjafarfyrirtækisins Hawkpoint og lögfræðistofunnar Ashurst, að því er fram kemur á vef fjármálaráðuneytisins.
Bloggað um fréttina
-
Haraldur Haraldsson Icesave samningar halda áfram/það verður spenna að fylgjast með þessu ... -
Hólmfríður Bjarnadóttir Gott mál - ICESAVE - viðræður að hefjast að nýju -
Jenný Stefanía Jensdóttir Gúrkutími? -
Magnús Óskar Ingvarsson Stutt í samning? -
Björn Birgisson Stutt í Icesave samning?
Innlent »
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Segir stuðning við Kanadadollar
- Brotist inn meðan íbúar skruppu frá
- Stefnan áframhaldandi lágt gengi
- Meintar falsanir til lögreglunnar
- Tryggja að allir komist heilir heim
- Gæsluvarðhaldið staðfest
- Fundur Háskólalestarinnar fellur niður
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
- Með loftbyssu í farangrinum
- Kirkjugarðar geta varla starfað áfram
- Nýsköpunarsjóður getur ekki beitt sér
- „Ekki beitt mér á einn eða annan hátt“
- Aðeins sakfelldir fyrir sterana
- Skoða leiðir um afnám hafta með ESB
- „Gengur treglega að fá niðurstöðu“
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 1. september 2010, Innlent Fundað um Icesave í Hollandi
- Sunnudagur, 14. febrúar 2010, Innlent Samninganefnd Íslands utan á morgun
- Föstudagur, 19. júní 2009, Innlent „Þarf ansi mikið að ganga á“
- Laugardagur, 5. mars 2011, Innlent Enn reiknað í ráðuneytinu
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Farið yfir Icesave-viðræður
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“





































