Leiðbeindu ekki eigendum um stofnun félags
Iðnaðarráðuneytið segir, að fulltrúar þess hafi ekki veitt eigendum Magma Energy Sweden leiðbeingar um stofnun félagsins. Hins vegar hafi verið haldinn fundur þar sem regluverk orkumála á Íslandi var útskýrt.
Magma Energy Sweden, sem er dótturfélag kanadíska orkufélagsins Magma Energy, hefur keypt nær allt hlutafé í HS Orku. Meirihluti nefndar um erlenda fjárfestingu hefur komist að þeirri niðurstöðu að þau kaup séu í samræmi við íslensk lög.
Tilkynning iðnaðarráðuneytisins er eftirfarandi:
Vegna frétta um aðkomu iðnaðarráðuneytis að stofnun Magma Energy Sweden vill ráðuneytið koma því á framfæri að fulltrúar þess leiðbeindu ekki eigendum fyrirtækisins um stofnun þess. Hið rétta er að fimmtudaginn 30. apríl 2009 áttu fulltrúar iðnaðarráðuneytis fund með fulltrúum fyrirtækjanna Magma Energy og Geysir Green Energy. Fundurinn var haldinn að beiðni fyrirtækjanna til að upplýsa um lagalegt umhverfi orkumarkaðar á Íslandi. Á fundinum gerðu fulltrúar ráðuneytisins grein fyrir helstu ákvæðum þeirra laga sem varða orkumál og heyra undir iðnaðarráðuneytið, m.a. lög nr. 58/2008 sem takmarka heimildir opinberra aðila til framsals auðlinda og tryggja meirhluta eignarhald opinberra aðila á sérleyfisfyrirtækjum á orkusviði. Þá fóru fulltrúar ráðuneytisins einnig yfir þau ákvæði laga nr. 34/1991, um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri, sem lúta að takmörkunum á fjárfestingum erlendra aðila í orkuauðlindum og orkufyrirtækjum, en jafnframt var útskýrt að lögin heyrðu undir viðskiptaráðuneytið og að viðskiptaráðherra hefði árið 2007 skipað nefnd til að endurskoða lagaumhverfi erlendra fjárfestinga á Íslandi og semja frumvarp sem leysti af hólmi gildandi lög. Fulltrúar ráðuneytisins leiðbeindu ekki fyrirtækjunum um stofnun dótturfélags á EES-svæðinu utan Íslands til að eignast HS Orku, enda málið ekki á forræði iðnaðarráðuneytis. Á hverju ári eiga fulltrúar ráðuneytisins fjölda funda með erlendum aðilum til að útskýra regluverk orkumála á Íslandi. Fundurinn með fulltrúum Magma Energy og Geysir Green Energy var í alla staði sambærilegur þessum fundum.
Bloggað um fréttina
-
Torfi Kristján Stefánsson Leiðbeindu ekki en upplýstu um lagalegt umhverfi!! -
Hafþór Baldvinsson Átti forstjóri Magma ekki fyrir Diet kók? -
Hecademus Einkavæðing orkunnar -
Bjarni Pálsson Undarlegar aðdróttanir -
Lísa Björk Ingólfsdóttir En Katrín vissi að um skúffufyrirtæki var að ræða. -
Guðrún María Óskarsdóttir. Þvílíkur kattaþvottur, samþykkir ráðherra iðnaðarmála, 98,5 % eigu erlendra aðila ...
Innlent »
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Föstudagur, 25.5.2012
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
- Ástþór losnar ekki við fyrirvara
- Annað innbrotið á innan við viku
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 15. maí 2010, Innlent Magma vill kaup hlut Geysis Green í HS Orku
- Fimmtudagur, 22. júlí 2010, Innlent Vilja upplýsingar um samskipti ráðuneyta við Magma
- Þriðjudagur, 9. febrúar 2010, Innlent Magma stofnar dótturfélag
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Magma og Geysir Green boða fund um HS Orku
- Mánudagur, 17. maí 2010, Innlent Magma eignast 98,53% í HS Orku
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































