Íslenskir námsmenn styrktir
Ríflega 155 milljónum króna hefur verið úthlutað til íslenskra námsmanna á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá mennta- og menningarmálaráðuneytinu. Þar kemur fram að öllum umsækjendum sem uppfylltu úthlutunarreglur hafi verið úthlutað styrk í allt að þrjá mánuði, en alls reyndust 532 námsmenn uppfylla skilyrði fyrir styrkveitingu.
Í kjölfar fjármálakreppunnar og frétta af bágri fjárhagsstöðu íslenskra námsmanna erlendis ákváðu menntamála- og samstarfsráðherrar Norðurlandanna að styrkja íslenska námsmenn á Norðurlöndum.
Árið 2009 var ríflega 100 milljónum íslenskra króna úthlutað til námsmanna í fjárhagvanda. Í ár veitti norræna ráðherranefndin aftur fjármagni til þessa verkefnis og var auglýst eftir umsóknum á vormánuðum. Styrkirnir eru ætlaðir námsmönnum sem eru í fjárhagsvanda vegna atvinnuleysis yfir sumarmánuðina og hafa hvorki möguleika á námslánafyrirgreiðslu né rétt á atvinnuleysisbótum. Í ár var einnig auglýst eftir styrkjum frá námsmönnum sem eru að hefja nám á Norðurlöndum haustið 2010 og eru án atvinnu í sumar.
Mennta- og menningarmálaráðuneyti var falið að hafa umsjón með styrkjunum. Samið var við Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins um að annast móttöku og umsýslu styrkumsókna en sérstök úthlutunarnefnd ákvarðaði úthlutanir.
Úthlutunarnefndin studdist við þær viðmiðunarreglur að umsækjandi væri við nám eða á leið í nám í skóla á Norðurlöndum, að nám umsækjanda væri lánshæft skv. úthlutunarreglum LÍN, að umsækjandi fengi ekki námslán fyrir meira en 60 ECTS einingum á námsárinu, að umsækjandi væri ekki í lánshæfu sumarnámi, að umsækjandi væri án atvinnu og ætti ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Umsóknarfrestur var til 15. júní. Sækja mátti um styrk til framfærslu í einn til þrjá mánuði.
Alls bárust 572 umsóknir sem er nær 43% aukning frá árinu 2009. Flestar umsóknir eða 498 þeirra bárust frá námsmönnum í Danmörku, 65 frá Svíþjóð, 8 frá Noregi, engin umsókn barst frá Finnlandi. Líkt og á síðasta ári var öllum umsækjendum sem uppfylltu úthlutunarreglur úthlutað styrk í allt að þrjá mánuði. Alls reyndust 532 umsækjendur uppfylla skilyrði fyrir styrkveitingu eða um 93% umsækjanda og nam heildarúthlutun styrkja ríflega 155 milljónum íslenskra króna.
Innlent »
- Málið var kært, en fellt niður
- Óvíst um fordæmisgildi
- Farþegum með Norrænu fækkaði
- Undir áhrifum á ótryggðum bíl
- Ólafur Ingi: Fagstétt útrýmt?
- Ný stjórn Röskvu
- Innkalla rjómasprautu
- Geir Jón gefur kost á sér
- Má gera athugasemdir í næsta blaði
- Kærir Snorra til lögreglu
- Hvessir undir Eyjafjöllum
- Jón Baldvin biðst afsökunar á bréfi
- 5,5 laxar í þúsund tonnum makríls
- Stöðvarhúslóð í Bjarnarflagi könnuð
- Brotist inn í Húsaskóla
- Þvottavélin lokaði hurðinni
- Borgarstarfsmenn ósáttari
- Ekkert samráð um frumvarpið
- Ferðamannastraumur til Akureyrar
- Heimsmeistari kvenna í skák keppir hér á landi
- Vindorka könnuð og kortlögð
- Virðingarleysi við vinnu allra
- Vestan stormur við suðurströndina í kvöld
- Þingmenn lesa Passíusálmana
- Ísing á Hellisheiði
- Lánað án trygginga og heimildar
- Allt að 100 ný störf
- Fimm sviptir á Suðurgötu
- Lagaramminn ekki sá einfaldasti
- Mikið sungið í bankanum
- Lögðu hald á marijúna og e-töflur
- Ábendingar til borgarinnar
- 2,1 milljarður í þróunarsjóði
- Jón Baldvin íhugar lögbann
- Varasamur vegarkafli
- Færri fara í tæknifrjóvganir
- Notaði munnhörpu sem hnúajárn
- Fá ekki frítt í sund
- Segist ekki saka sýslumenn um lögbrot
-
Ómarkviss þjóðaratkvæðagreiðsla
- Varað við lúmskri ísingu
- „Þetta eru forkastanleg vinnubrögð“
- Aftur til stjórnlagaráðs
- Vill ESB-tillögu á dagskrá
- Nokkur fjöldi mála í athugun
- Hæfileikakeppni á mbl.is og Skjá einum
- Fjallað um bréf Jóns Baldvins til unglingsstúlku
- Vilja úttekt á stöðu verslunar í miðborginni
- Lýst eftir stolnum bíl
- Fordæma árás á starfsmann
- Litskrúðugt og líflegt í Fríhöfninni
- Ráðist á einn stjórnenda Dróma
- Hafna ásökunum Hagsmunasamtaka heimilanna
- Umfjöllun í Nýju lífi um bréf Jóns Baldvins Hannibalssonar
- Grunnskólakennari fordæmir samkynhneigð
- Fjárlagafrumvarp 2011
- Landsdómur
- Kvótafrumvarp
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. ágúst 2009, Innlent Yfir 100 milljónir til íslenskra námsmanna
- Miðvikudagur, 9. september 2009, Innlent Allt að 25% færri sækja um lán vegna náms erlendis
- Fimmtudagur, 2. desember 2010, Innlent 375 beiðnir um greiðsluaðlögun
- Föstudagur, 12. júní 2009, Innlent Segir sig úr stjórn LÍN
- Þriðjudagur, 9. júní 2009, Innlent „Horfurnar eru ekki bjartar“
-
Hundarnir finna dópið strax
-
Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar
-
Færir Advania forystu?
-
Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja
-
Fundu lík fimm ára stúlku
-
Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína
-
Kristrún: Eigum séns á að komast í úrslitakeppnina
-
Bragi: Sorglegt baráttuleysi



































