Ekið á börn á hjóli

Börnin voru öll flutt á slysadeild. Mynd úr safni
Börnin voru öll flutt á slysadeild. Mynd úr safni Mbl.is/Júlíus Sigurjónsson

Tvö börn á hjóli urðu fyrir bílum i Reykjavík  nú síðdegis. Bæði börnin voru flutt með sjúkrabíl á slysadeild samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins.

Annað slysið varð á Breiðholtsbraut og olli nokkrum töfum á umferð en hitt varð á Reykjavíkurvegi.

Einnig féll barn af hjóli í Hlíðunum í Reykjavík og var það einnig flutt á slysadeild til aðhlynningar.

Ekki hafa fengist upplýsingar um alvarleika slysanna en samkvæmt sjúkraflutningamönnum hjá slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins mæta tilkynningar þar sem börn eiga í hlut miklum forgangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert